Vafrar
Úr Wikipedia, frjálsu alfræðiorðabókinni
Notendur Linux stýrikerfisins hafa úr mörgum kostum að velja þegar kemur að því að vafra veraldarvefinn. Microsoft hefur ekki gefið út Internet Explorer fyrir Linux og því stendur hann ekki til boða.
Vafrar fyrir Linux eru ýmist gefnir út af fyrirtækjum/félögum sem sérhæfa sig í gerð vafra eða af samtökum sem smíða gluggamiðlara fyrir Linux og láta vafra fylgja með.
Dæmi um vafra sem framleiddir eru sem sjálfstæð forrit eru
Þessa vafra geta notendur Windows og Apple einnig notað. Firefox er frjáls hugbúnaður og hefur verið að auka vinsældir sínar hratt undanfarið. Opera er ókeypis og á marga trygga notendur. Opera Software framleiðir vafrann en því fyrirtæki er stýrt af Jon Stephenson von Tetzchner sem er hálfur Íslendingur.
Tveir helstu vafrarnir sem fylgja með gluggakerfum eru þeir sem eru smíðaðir af samtökunum sem halda utan um KDE og GNOME. Þessir vafrar eru
- Konqueror - Frá KDE
- Epiphany - Frá GNOME
Sjá einnig
- Mozilla Firefox - Upplýsingar um Firefox og leiðbeiningar um uppsetningu.
Hlekkir og ítarefni
- Konqueror (http://konqueror.kde.org/) - Heimasíða
- Epiphany (http://www.gnome.org/projects/epiphany/) - Heimasíða
- Mozilla Firefox (http://www.mozilla.com/firefox/) - Heimasíða
- Opera (http://www.opera.com/) - Heimasíða
![[Forsíða]](/wiki/stylesheets/images/wiki.png)