Ubuntu
Úr Wikipedia, frjálsu alfræðiorðabókinni
Ubuntu er ein af mörgum dreifingum GNU/Linux stýrikerfisins og er hún byggð á annari útgáfu sem ber nafnið Debian. Ubuntu hefur það að leiðarljósi að búa til notendavæna útgáfu af Linux sem er notendum að kostnaðarlausu og er verkefnið styrkt af Canonical Ltd. (http://www.canonical.com/)
Ubuntu má nálgast á www.ubuntu.com og er þar hægt að sækja nýjustu útgáfu kerfisins, Gutsy Gibbon. Einnig getur þú pantað geisladiska í pósti þér að kostnaðarlausu á slóðinni shipit.ubuntu.com.
Ubuntu notar sama pakkakerfi og Debian og er það þekkt fyrir að hafa á bak við sig eitt stærsta safn forrita sem fyrirfinnst og er fjöldi pakka í kerfinu yfir 17.000. Allir þessir pakkar eru speglaðir hér innanlands af Listaháskólanum og Símanum.
Þegar þú setur upp kerfið í fyrsta sinn þá notast það sjálfkrafa við innlenda pakka að því gefnu að þú hafir sett Ísland sem staðsetningu þegar þú settir upp stýrikerfið. Með þessu færðu strax aðgang að mörgum þúsundum af pökkum sem eru allir studdir af Ubuntu. Hægt er að nálgast enn fleiri pakka með því að bæta inn Universe og Multiverse söfnunum en þau innihalda enn fleiri pakka sem eru ekki studdir beint af Ubuntu en eru þarna fyrir þá sem vilja. Til að bæta við þessum söfnum, bætið eftirfarandi línum í /etc/apt/sources.list (t.d. með því að gera $ sudo gedit /etc/apt/sources.list eða fara í Synaptic, fara í Add og velja Custom):
deb http://ubuntu.hugi.is/repositories gutsy universe multiverse deb-src http://ubuntu.hugi.is/repositories gutsy universe multiverse
Athugið að gutsy hér að ofan vísar til tiltekinnar útgáfu og þarf að breyta til að samsvara nafni þeirrar útgáfu Ubuntu sem þegar er keyrandi á vélinni
Gerið svo
$ sudo apt-get update
... eða farið í Synaptic og veljið Reload. Nú ætti safnið ykkar að telja yfir 17.000 pakka og þar er ýmislegt að finna.
![[Forsíða]](/wiki/stylesheets/images/wiki.png)