Skeljar
Úr Wikipedia, frjálsu alfræðiorðabókinni
| Efnisyfirlit |
Hvað er skel?
Skel er forrit sem notað er til þess að tala við stýrikerfið. Skeljar eru venjulega flokkaðar í tvo flokka. Á ensku eru þessir flokkar venjulega kallaðir CLI og GUI. CLI stendur fyrir Command Line Interface og gengur út á það að notandinn slái inn texta sem skelin túlkar sem skipanir. GUI aftur á móti stendur fyrir Graphical User Interface og er með myndrænt viðmót fyrir notandan til þess að skipa tölvunni fyrir. Flestir notendur þekkja GUI viðmót og nota mús til þess að hafa samskipti við það.
Hvort er betra CLI eða GUI?
Þetta er í raun spurning sem mjög margir velta fyrir sér, en á sér mjög einfalt svar. Hvort um sig eru mjög sérhæft og er venjulega ekki hægt að bera þau saman. CLI skel býður notandanum venjulega upp á skipanir sem hægt er að gera hluti í sem tæki mjög langan tíma að framkvæma með GUI skel. En GUI er líka oft með eiginleika yfir CLI, þar sem hægt er að framkvæma aðgerðir mjög fljótt vegna myndrænna uppraðanna upplýsinga.
Hvaða CLI skeljar eru til?
- bash
- cmd.exe
- command.com
- ksh
- zsh
- csh
- tcsh
- esh
- rc
- sh
Hvaða GUI skeljar eru til?
- BeOS
- fwvm
- Gnome
- KDE
- MacOS X
- Windows
![[Forsíða]](/wiki/stylesheets/images/wiki.png)