Forsíða | Nýlegar breytingar | Breyta þessari síðu | Forsaga síðu

Prentvæn útgáfa | Disclaimers

Not logged in
Log in | Hjálp
 

Realplayer

Úr Wikipedia, frjálsu alfræðiorðabókinni

Realplayer er eitt þeirra margmiðlunarforrita sem styðja Linux. Eftirfarandi eru leiðbeiningar um það hvernig Realplayer er sett upp á Linux og hvernig Mozilla Firefox er gert kleyft að nota það sem tengiforrit (plugin).

Uppsetning

1. Niðurhal

Fyrst verður að ná í forritið af vefnum á vef Real fyrirtækisins:

Best er að smella á "Download Realplayer" takkann og vista forritið. Skjalið sem vistast heitir RealPlayerGOLD.bin.

2. Uppsetning

Í skelinni er skjalið sem vistaðist gert keyranlegt (executable) með skipuninni

chmod a+x RealPlayer10GOLD.bin

Þvínæst er skjalið keyrt (sem ofurnotandi ef þess þarf) með skipuninni

./RealPlayer10GOLD.bin

Uppsetningarforritið spyr hvar skal setja Realplayer upp. Ágætt er að setja forrit upp í /usr/local en til þess þarf yfirleitt ofurnotendaréttindi.

3. Symbolic link

Þegar forritið hefur verið sett upp þarf að búa til hlekk á það svo að vélin viti hvar hægt er að nálgast það. Þetta má gera með skipuninni

ln -s /usr/local/RealPlayer/realplayer /usr/local/bin/realplayer

Svo lengi sem /usr/local/bin er hluti af "path" umhverfis breytunni (environment variable) þá er nú hægt að ræsa Realplayer hvaðan sem er.

Realplayer sem Firefox tengiforrit (plugin)

Ef skoða á efni á vefnum sem þarfnast Realplayer forritsins þarf Firefox vafrinn að vita hvar er hægt að nálgast þær skrár sem þarf.

Ef við gerum ráð fyrir því að realplayer hafi verið sett upp í möpunni /usr/local/RealPlayer má virkja það sem tengiforrit með skipuninni

ln -s /usr/local/RealPlayer/mozilla/* /home/notandi/.mozilla/plugins/

Næst þegar Firefox forritið er ræst þá verður hægt að nota Realplayer sem tengiforrit.


Retrieved from "http://www.rglug.org/wiki/index.php/Realplayer"

This page has been accessed 903 times. Þessari síðu var síðast breytt 19:59, 2 sep 2007. Content is available under GNU Free Documentation License 1.2.


[Forsíða]
Forsíða
Nýlegar breytingar
Handahófsvalin síða
Líðandi stund

Breyta þessari síðu
Ræða um þessa síðu
Forsaga síðu
Hvað tengist hingað
Skyldar breytingar

Sérstakar síður
Bug reports