Forsíða | Nýlegar breytingar | Breyta þessari síðu | Forsaga síðu

Prentvæn útgáfa | Disclaimers

Not logged in
Log in | Hjálp
 

RGLUG

Úr Wikipedia, frjálsu alfræðiorðabókinni

RGLUG er GNU/Linux notendahópur fyrir stærsta byggðarlag Íslands, Reykjavík og nágrenni! Linux users group (LUG) er staðarbundinn stuðningshópur, samfélag og vettvangur GNU/Linux notenda. LUGs eru eru þekkt vítt um allan heim og mætti líkja þeim við svæðisskrifstofur GNU/Linux. Þar geta núverandi sem og tilvonandi GNU/Linux notendur stundað skoðanaskipti og hjálpað hver öðrum. RGLUG er okkar tilraun til að heimfæra þessa hugmynd.

Logo RGLUG
Enlarge
Logo RGLUG
Efnisyfirlit

Markmið og stefna

Markmið okkar með stofnun RGLUG er ekki aðeins að skapa notendum GNU/Linux vettvang þar sem þeir geta rætt saman og skipst á upplýsingum, heldur einnig sá að upplýsa fólk almennt um frjálsan hugbúnað og þá hugmyndafræði sem býr honum að baki. RGLUG á ekki síður erindi við tilvonandi GNU/Linux notendur en núverandi. Meðal þess sem við höfum á stefnuskrá okkar er:

Saga félagsins

RGLUG var stofnað í júní 2003 af nokkrum tölvuáhugamönnum sem töldu að hér á landi vantaði einhvern vettvang fyrir notendur GNU/Linux og frjáls hugbúnaðar. RGLUG er ætlað að vera sá vettvangur.

Starfsemi

Við höldum reglulega fundi sem öllum er velkomið að sækja. Þar geta GNU/Linux notendur hist og rætt málin. Einnig geta áhugasamir fengið aðstoð frá reyndari GNU/Linux notendum með uppsetningu og önnur mál. Póstlistinn er hjarta hvers LUG og fara flestar umræður fram þar. Öllum er frjálst að skrá sig og senda á póstlistann.

Atburðir

Hægt er að skoða lista yfir atburði félagsins á svotilgerðri viðburðasíðu.

Vefsíða félagsins er www.rglug.org/.

Retrieved from "http://www.rglug.org/wiki/index.php/RGLUG"

This page has been accessed 1935 times. Þessari síðu var síðast breytt 22:24, 14 feb 2008. Content is available under GNU Free Documentation License 1.2.


[Forsíða]
Forsíða
Nýlegar breytingar
Handahófsvalin síða
Líðandi stund

Breyta þessari síðu
Ræða um þessa síðu
Forsaga síðu
Hvað tengist hingað
Skyldar breytingar

Sérstakar síður
Bug reports