Mozilla Firefox
Úr Wikipedia, frjálsu alfræðiorðabókinni
Efnisflokkar: Uppsetning forrita
Firefox er ókeypis vafri sem margir notendur Windows, Apple og Linux nota til að vafra um vefinn.
Mozilla stofnunin sér um þróun vafrans en þúsundir sjálfboðaliða hafa forritað og gefið kóðann sem hann samanstendur af. Fyrsta útgáfa vafrans, útgáfa 1.0, kom út 9. nóvember 2004. Tæplega ári seinna voru notendur búnir að ná í forritið oftar en hundrað milljón sinnum. Firefox er eitt vinsælasta forrit heims sem flokkast undir frjálsan hugbúnað.
| Efnisyfirlit |
Viðbætur (extensions)
Einn helsti styrkleiki Firefox vafrans er sá að hvaða forritari sem er getur bætt við hann virkni með því að forrita svokallaða viðbót (e. extension). Ef öðrum notendum líst vel á slíka virkni geta þeir bætt henni við sína útgáfu af vafranum með einum músarsmell.
Dæmi um vinsælar viðbætur eru:
- Adblock (http://adblock.mozdev.org/) (felur auglýsingar)
- Mouse Gestures (http://optimoz.mozdev.org/gestures/) (leyfir notanda að gefa algengar skipanir með músinni, t.d. að bakka)
Tengiforrit (plugins)
Eins og aðrir vafrar gerir Firefox notanda kleyft að keyra svokölluð tengiforrit (plugins). Þetta gerir það að verkum að notandi getur t.d. skoðað pdf skjöl beint úr vafranum. Sama gildir um ýmislegt margmiðlunar efni svo sem tónlist og myndbönd. Mozilla heldur utan um leiðbeiningar um það hvernig setja má upp hin ýmsu tengiforrit í Firefox:
- Mozilla Plugin Support on Linux (x86) (http://plugindoc.mozdev.org/linux.html)
Sem dæmi er hægt að nota eftirfarandi forrit sem tengiforrit í Firefox:
- Realplayer - upplýsingar um uppsetningu á Realplayer sem tengiforrit
- MPlayer - staðgengill fyrir Windows Media Player
Uppsetning á Linux
Firefox fylgir með öllum helstu Linux dreifingum. Dæmi um dreifingar þar sem Firefox er þegar uppsettur eru Debian, Fedora, Kubuntu, Mandriva, SUSE og Ubuntu.
Ef vafrinn er ekki þegar upp settur þegar Linux hefur verið sett upp má gjarnan nálgast hann með "package management" lausnum hverrar dreifingar.
Firefox á Ubuntu og Debian
Firefox er til í pakkakerfinu sem kemur með Debian og Ubuntu en þó er ekki sama nafn á pakkanum sem inniheldur Firefox. Eftirfarandi skipanir sýna hvernig má sækja og setja upp Firefox á þessum útgáfum.
- Ubuntu:
$ sudo apt-get install firefox
- Debian:
# apt-get install mozilla-firefox
Niðurhal og uppsetning fyrir Firefox 1.5
Notandi gæti sjálfur viljað ná í Firefox vafrann af vefnum til að setja hann upp á Linux kerfinu sínu. Til þess eru eftirfarandi skref tekin:
1. Ná í vafrann af Firefox vefnum (http://www.mozilla.org/products/firefox/)
Skjalið sem vistast á diskinn heitir firefox-útgáfa.tar.gz. Í stað "útgáfa" stendur númerið á útgáfunni sem var sótt, t.d. "1.5". (Dæmi: Firefox-1.5.tar.gz)
2. Afpakka skjalinu í skelinni
Gefum okkur að skjalið sem náð var í var vistað í /home/notandi/downloads/firefox, þar sem "notandi" er notendanafn þess notanda sem náði í skjalið.
Opnaðu skelina og farðu inná svæðið þar sem skjalið er geymt
cd /home/notandi/downloads/firefox
Afpakkaðu skjalinu svo til verði mappan firefox
tar -xvzf firefox-1.5.tar.gz
3. Færa firefox möppu á réttan stað
Í skelinni, skrifaðu skipunina
su
til að gerast ofurnotandi.
Ef Firefox er þegar settur upp á véina þína gætir þú þurft að eyða gömlu uppsetningunni með
rm -Rf /usr/local/firefox
Næst notar þú skipunina
mv firefox /usr/local/
til að flytja firefox möppuna á réttan stað.
Firefox er nú uppsettur á vélinni þinni og staðsetning hans er /usr/local/firefox.
4. Lokaskref
Til að geta ræst forritið auðveldlega þarf vélin að vita hvar þú geymir það. Farðu inni í möppuna /usr/local/bin
cd /usr/local/bin
Búðu til "symbolic link" eða hlekk yfir á forritið með skipuninni
ln -s /usr/local/firefox/firefox
Nú ættir þú að geta ræst Firefox hvaðan sem er, með því að gefa skipunina firefox.
Hlekkir og ítarefni
- Firefox (http://www.mozilla.org/products/firefox/) - heimasíða
- Mozilla Foundation (http://www.mozilla.org/) - heimasíða
- Listi yfir viðbætur (https://addons.mozilla.org/extensions/?application=firefox) - Hýst hjá Mozilla stofnuninni
- Wikipedia færsla (http://en.wikipedia.org/wiki/Firefox) um Firefox
Tengd forrit
- Mozilla (http://www.mozilla.org/products/mozilla1.x/)
- Mozilla Thunderbird (http://www.mozilla.org/products/thunderbird/)
![[Forsíða]](/wiki/stylesheets/images/wiki.png)