Bash fyrir byrjendur
Úr Wikipedia, frjálsu alfræðiorðabókinni
| Efnisyfirlit |
Saga Bash
Bash er endurbætt útgáfa af Bourne shell sem var hefðbundna skelin í Unix kerfum hér áður fyrr. Þetta þýðir að bash getur gert allt sem Bourne shell getur ásamt mörgu öðru. Bourne shell er venjulega kallað sh.
Bash notar líka margar hugmyndir úr ksh sem einnig bætti eiginleikum við sh. Einnig hafa bæst við nokkrir eiginleikar úr csh, en með sh-legri málfræði.
Bash málfræði
Skipanirnar sem notaðar eru í bash eru tvennskonar. Það eru innbyggðar skipanir í skelinni og svo nöfn á forritum sem hægt er að keyra á vélinni.
Það er lang best fyrir byrjendur að prófa sig áfram með því að nota skipanirnar.
Að fá hjálp
Það eina sem þarf að vita til að geta byrjað að nota skel líkt og Bash, er hvernig hægt er að fá hjálp. Mjög fullkomið og ítarlegt hjálparkerfi kemur með skelinni er það virkjað með skipununni man. man skipunin birtir hjálparskjal fyrir nánast allar tiltækar skipanir í skelinni. Til að fá upp hjálparsíðu skipanar er nóg að skrifa:
man <nafn-skipunar>
t.d. til að fá upp hjálpina fyrir pwd skipunina hérna að neðan er nóg að slá inn
man pwd
Til að loka hjálparsíðunni er nóg að styðja á 'q' takkann. Hægt er að fá hjálp um man kerfið sjálft og er það gert með þessari einföldu skipun
man man
Einnig eru mörg kerfi sem bjóða uppá skipunina info, sem virkar mjög svipað og man.
Algengt er einnig að forrit hafi innbygða hjálp sem kalla má í með því að nota '--help' valmöguleikann.
<nafn-skipunar> --help
Prófið t.d. að gera:
man --help
Sjá hvaða möppu við erum í
Fyrsta dæmið sem við tökum er pwd skipunin sem notuð er til að fá að vita í hvaða möppu við erum staðsett.
pwd
Í flestum skeljum er alltaf talað um þá möppu sem notandinn er staddur í. Til þess að fá að sjá hvaða möppu við erum stödd í notum við pwd sem stendur fyrir Print Working Directory. Það ætti að koma lína á skjáinn sem lýtur einhvernegin svona út /home/notendanafn.
Sjá hvaða skrár og möppur eru í möppuni
Næst skulum við sjá hvaða möppu og skrár eru í þessari möppu, og til þess notum við ls skipunina. ls stendur fyrir !LiSt.
ls
Ef mappan þín er tóm, þá færðu engan lista yfir skrár á skjáinn hjá þér.
Til að fá nákvæmari lista er algengt að notuð sé eftirfarandi skipun:
ls -la
Þarna má sjá tvo valmöguleika:
- '-l': Sýnir eina skrá í línu með upplýsingum um eiganda o.fl.
- '-a': Sýnir allar skrár, þ.m.t. faldar skrár (skrár sem byrja á .)
Eins og sést í dæminu hér að ofan er hægt að hópa saman valmöguleika sem fylgja einu bandstriki. Þannig eru eftirfarandi línur jafngildar:
ls -l -a -R ls -la -R ls -laR
Skipta um staðsetningu
Til þess að fara yfir í aðra möppu með bash notum við innbyggðu skipunina cd, sem stendur fyrir Change Directory. Fyrir aftan cd skipunina setjum við slóð að möppunni sem við viljum fara í. Í þessu dæmi förum við í rótar möppuna /.
cd /
Ef þú notar ls skipunina inni í þessari nýju möppu sem við vorum að fara í, ættirðu að sjá nokkrar möppur. Til þess að fara aftur yfir í möppuna sem þú varst í geturðu sett slóðina sem þú fékst úr pwd í stað /. En til þess að fara aftur í á heimasvæðið þitt, (Það er að segja möppuna sem þinn notandi á) þarf bara að skrifa cd án þess að bæta við slóð fyrir aftan.
cd
Með því að setja inn .. fyrir slóð fyrir aftan cd, er verið að biðja um að fara í möppuna fyrir neðan í trénu. T.d. ef þú ert með skrár í /home/notendanafn.
cd /home/notendanafn
og skrifar cd ..
cd ..
þá ertu komin í möppuna /home
Það eru líka til tvær leiðir til að segja cd í hvaða möppu hún á að fara. Með beinum tilvísunum, þar sem öll slóðin er tekin. T.d. /home/notendanafn, og svo með því að nota nafnið á möppuni í möppuni sem þú ert í. T.d. ef þú ert í /home, þá er hægt að segja cd notendanafn.
Búa til möppur
Næst skulum við búa til möppu með mkdir skipuninni. Hún tekur við nafninu á möppuni eða möppunum sem þú ættlar að búa til.
mkdir mappa1 mappa2
Ef þú notar ls núna ættirðu að sjá þessar tvær möppur, og ættir að geta notað cd til þess að fara inn í þær og cd .. til að fara út úr þeim.
Henda út möppum og skrám
Athugið að flestar þessar skipanir færa hlutina ekki í 'Trash' eða 'Recycle Bin' heldur eyða skrám/möppum varanlega af tölvunni þinni.
Til að eyða út skrám er skipunin 'rm' notuð:
rm index.html
Nú ætti skráin index.html að vera horfin.
Til þess að eyða möppunum er notað rmdir skipunin. Með henni þarf að taka fram hvaða möppur á að eyða út fyrir aftan skipunina. Mappan þarf að vera tóm til að það sé hægt að eyða henni með þessari skipun.
rmdir mappa1
Eftir þessa skipuna ætti mappan mappa1 að vera horfin.
Hægt er að komast hjá því að tæma möppur áður en þeim er hent með því að nota rm skipunina á eftirfarandi hátt:
rm -r mappa1
Hér eyðir rm út 'mappa1' og öllum skrám eða möppum sem þar gætu hafa leynst.
Endurnefna og færa
Til að færa skrár eða möppur notum við 'mv' skipunina
Þetta myndi færa index.html inn í möppuna 'mappa1'
mv index.html mappa1
Þessa skipun má líka nota til að endurnefna skrár eða möppur.
mv mappa1 flottmappa
Afrita
Til að afrita skrár eða möppur notum við 'cp' (copy
![[Forsíða]](/wiki/stylesheets/images/wiki.png)