Þýðing
Úr Wikipedia, frjálsu alfræðiorðabókinni
Þegar tölvur keyra forrit lesa þær upplýsingar um forritið úr ákveðinni skrá. Þessar upplýsingar eru geymdar á formi sem tölvan skilur, en næstum ómögulegt er fyrir fólk að lesa og skrifa svona skrár. Þess vegna voru hönnuð forritunarmál, sem samanstanda af einföldum skipunum sem fólk getur skilið og unnið með og hannað með þeim forrit. Þessar skipanir eru skrifaðar í skrár sem síðan eru sendar til þýðanda. Hann les skrárnar og að því gefnu að öllum "málfræðireglum" forritunarmálsins hafi verið fylgt býr hann til forrit sem hægt er að keyra.
Flest forrit eru til sem keyranlegar skrár sem hægt er að sækja og keyra beint. Þó er raunin ekki alltaf sú og geta notendur stundum þurft að þýða forritin sem þeir vilja nota sjálfir. Með Linux fylgir nær alltaf þýðandi sem heitir GCC eða "Gnu Compiler Collection". GCC skilur ótal forritunarmál og hægt er að þýða flest forrit sem hönnuð eru fyrir Linux með honum.
![[Forsíða]](/wiki/stylesheets/images/wiki.png)