[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

SV: Frjáls hugbúnaður í skólum Kópavogs



Sæl öll,

Það sem ég hef helst verið að benda á er að það er hægt, með áskriftasamningi við Microsoft, að beita lausnum sem eru afar yndislegar og gera það að verkum að mannshöndin þarf varla að koma nærri rekstri kerfanna. Ég veit 

Mörg sveitafélög eru ekki með leigusamninga, dæmi er x, þeirra leyfi eru öll eignaleyfi sem hafa verið keypt í gegnum tíðina smátt og smátt. Þess vegna eru þeir með Office 2000 á mörgum tölvum. x er í sjálfu sér alls ekki ósátt við þau viðskipti, telja þau hafa verið hagkvæm í gegnum tíðina. En mikið var þrýst á þá á sínum tíma að fara í leigikerfið - x hefur talið það mikla lukku að gera það ekki.

Kveðja,

Agnar

________________________________________
Frá: J.Reykdal [jreykdal ( at ) simnet ( dot ) is]
Sent: 28. febrúar 2010 12:50
Viðtakandi: rglug ( at ) rglug ( dot ) org
Efni: Re: Frjáls hugbúnaður í skólum Kópavogs

Svo að menn fari nú ekki offari í að hallmæla Windows (þótt það sé ekki
flókið) þá held ég nú að það sé frekar einfalt að skilgreina hvar "My
Documents" er staðsett með environment breytu.

Einnig eru alveg sæmilegir ACL's í tengslum við Active Directory og slíkt.

Þótt einhverjir einstaka skólar séu ekki að gera þetta vel þá er það
meira gagnrýni á þeirra uppsetningar frekar en Windows yfir höfuð.

Það er líka skíteinfalt að setja Linux fjölnotakerfi upp vitlaust.
Hamarinn verður ekkert betri en sá sem sveiflar honum. :)

JReykdal

Þann lau 27.feb 2010 16:13, Bjartur Thorlacius skrifaði:
> Sæll Agnar,
>
> On 2/22/10, Agnar Guðmundsson<agnar ( at ) fss ( dot ) is>  wrote:
>> Heill og sæll Bjartur,
>>
>> Það er ágætt að halda á lofti ágæti opins hugbúnaðar. En mig langar að benda
>> á atriði sem eru ekki alveg rétt hjá þér. Windows er vissulega hannað til að
>> vera á neti, með miðlægðum og dreifðum netþjónum og þjónustu í huga.
>> Yfirleitt í skólaumhverfi er hugbúnaðurinn keyrður í gegnum tækni sem
>> kallast AppV, þar sem hugbúnaðurinn er hýstur miðlægt, og í raun keyrir
>> miðlægt einnig.
> Er þetta notað í Snælandsskóla? Ég hef aldrei tekið eftir því þar sem
> það þarf alltaf að installa forritum á hverja tölvu sérstaklega, og
> "Program Files" er stútfullt af forritum (er þetta kannski
> "mountað/redirectað" þar eða er þetta cache?). Af hverju eru þá öll
> forrit sem fylgdu ekki með stýrikerfinu bara á sumum tölvunum? Væri
> ekki einfaldara að setja upp forrit eins og Firefox, Chrome og
> OpenOffice á allar tölvurnar? Ef þetta er notað þá virðist það ekki
> vera nýtt til fulls. En upphaflega var Unix (sem Linux "erfir" frá)
> notað í kerfum keimlíkum þeim sem eru í skólum landsins. DOS/Windows
> var aftur á móti notað á einkatölvum sem höfðu lítil samskipti við
> miðlæga netþjóna. Windows bætti síðan stuðningi við miðlæga þjóna
> eftirá.
>> Annað sem yfirleitt er gert í skólaumhverfi, er að notað er forrit frá
>> Microsoft sem heitir Windows SteadyState. Aljör snilld, sem tryggir að
>> notendur geti ekki vistað gögn á tölvur, tryggir einnig að tölvurnar komi
>> alltaf "rétt" upp.
> Ég hef aldrei heyrt um þetta forrit áður, en ef þetta er forritið sem
> á að banna aðgang að "C:" (harða disknum) þá virkar hann bara á
> kennara (ef þeir eiga ekki að hafa aðgang að honum) og yngstu
> nemendurna.  Af heimasíðunni að dæma virðist þetta líka vera forritið
> sem lokar á skelina (cmd), sem er einfalt að komast framhjá. Sé ekki
> "snilldina" á bakvið það.
>
> Væri ekki betra að nota ACL (aðgangsstjórnun) á forrit sem nemendur
> eiga ekki að geta keyrt, gefa nemendum ekki meiri réttindi en Linux
> gerir "by default", og leyfa skelina fyrir þá sem finnst hún
> þægilegri? Sem sagt, nota stillingarnar sem flestar Linux útgáfur
> (distros) notast við.
>> Svo eitt annað sem er yfirleitt gert í umhverfi þar sem margir eru um sömu
>> tölvurnar, notuð er tækni sem kallast Folder Redirection til að passa að öll
>> gögn sem notendur visti, fari á netdrif, svo öruggt sé að þegar viðkomandi
>> fer næst inn á aðra tölvu, þá eru sömu skjölin aðgengileg þar einnig.
> Að mínu mati gerir Linux þetta "betur" en þetta virkar nokkurn veginn
> samt. Vandamálið er að maður þarf að vista þetta sérstaklega á
> "netdrifin", annars vistast þetta bara á harða diskinn og er
> óaðgengilegt á öðrum tölvum. Það er til dæmis ekki hægt að vista þetta
> á skjáborðið ("Desktop") en þetta tiltekna dæmi yrði að vísu leyst með
> því að geyma C:\Documents%20and%20Settings\%USERNAME% á netþjóninum í
> stað "My Documents", þótt það myndi að vísu ekki ná öllum
> notendastillingum þar sem mörg forrit geyma þau í "Program Files". Það
> virðist þó af einhverjum ástæðum ekki vera stutt sérstaklega af
> tækninni. En svona villur myndu ekki gerast á Linux þar sem $HOME væri
> einfaldlega geymt á þjóninum, og þar eru öll gögn sem nemandinn þarf
> aðgang að í öllum tölvum (stillingar, gögn, ritgerðir, et.c.). Á Linux
> (og Unix kerfum almennt) geymir maður ákveðnar skrár á þjóninum, t.d.
> /home (heimasvæði) /usr (notendaforrit o.fl.) og /etc
> (grunnstillingar) eftir því hvað hentar manni, talvan "mountar" það
> svo bara þegar hún ræsir sig.
>> Ég tel að tæknilega náist alveg það sem þú fjallar um í póstinum þínum, með
>> Windows stýrikerfi. Þú virðist einnig hafa áhyggjur af kostnaði Kópavogs við
>> tölvukerfið, þar gæti verið hægt að spara einhverjar krónur í
>> hugbúnaðarleyfum, en á móti kemur að annar kostnaður gæti komið í staðinn.
> Málið er að þessi kostnaður væri líklega beinn launakostnaður; það
> þyrfti að fá Linux- í stað Windows-kerfisstjórnendur. Ekki þyrfti
> lengur að borga dollara fyrir Microsoft lausnir s.s. Windows og
> Office. En það eru enn nokkrir hlutir sem þú hefur ekki útskýrt
> hvernig hægt væri að ná með Windows; t.d. hvernig það á að leyfa
> kennurum að setja upp kennsluforrit án þess að valda meiriháttar
> öryggisvandamálum og smám saman fylla kerfið að leifum af forritum sem
> er búið að uninstalla að hluta til. Þetta er leyst á Linux með
> pakkakefum s.s. APT sem gera það létt að leyfa ákveðnum notendum að
> setja upp forrit sem er búið að leyfa. Sem sagt þá gætuð þið t.d.
> leyft kennurum (óháð því hvort þið leyfið nemendum) að setja upp
> yfirfarin kennsluforrit, en þeir gætu ekki sett inn vírusa (og annað
> malware). Svo væri hægt að taka það út með einni skipun/músarsmell.
> Eins og staðan er núna geta kennarar ekki sett upp forrit fyrir
> nemendur.
>
> Einnig geta nemendur ekki stillt hverjir hafi aðgang að gögnunum
> þeirra, sem þýðir að í hópverkefnum geta prakkarar úr allt öðrum
> bekkjum hent verkefnunum þeirra. Linux gerir það auðveldara að skrá
> einfaldlega hópa sem hafa aðgang að skjölunum ("eiga" þau) og nemendur
> sem eru ekki í þessum hóp geta ekki hent þeim. Eins og þetta er í dag
> geta nemendur ekki einu sinni breytt því hvort skjölin þeirra séu
> eyðanlegum af hverjum sem er eður ei!
>
> Einnig get ég ekki notað FUSE til að "mounta" heimasvæðið mitt heima
> hjá mér í skólanum, en það myndi einfalda það að vinna að ritgerðum
> bæði heima hjá mér og í skólanum. Núna þurfa flestir að senda
> ritgerðirnar fram og aftur í tölvupósti, og ég lendi öðru hvoru í því
> að þurfa að hjálpa nemendum að ná í ritgerðir í tölvum sem hafa hvorki
> Mozilla Firefox né Google Chrome (en það er bara á sumum tölvunum) og
> nota ég þá Firefox sem ég setti inn á heimasvæðið mitt. Það er
> grunnfítus að nemendur geti haldið áfram með ritgerðir í skólanum sem
> þeir byrjuðu á heima hjá sér og sýnt glærukynningar sem þeir kláruðu
> heima hjá sér.
>
> Takk kærlega fyrir svarið, en ég skil ekki hvað réttlætir það að eyða
> skattpeningum sveitarfélaga í lausnir sem virka ekki sem skyldi þegar
> ódýrari, frjálsari og betri lausnir standa til boða. Sér í lagi í
> menntakerfinu þar sem margir nemendur fá varla að kynnast neinu öðru
> og stuðlar þannig að þeir og vinnuveitendur þeirra noti þetta eingögnu
> í framtíðinni jafnvel án þess að kynnast öðrum möguleikum til fulls.