[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]
Re: Tar villla: invalid or incomplete multibyte or wide character
cpio gafst upp við 4GB og sagði að skráin væri orði of stór. Þá fór
eitthvað að rifjast upp fyrir mér: FAT32 (og kannski NTFS?) býr við
það vandamál að skrá getur ekki verið stærri en 4GB.
Heimamappan mín var eitthvað stærri. Áður var ég búinn að prófa afio,
sem virkaði mun hraðar en cpio, auk heldur sem í dokumentasjóninni með
því voru upplýsingar um hvernig megi splitta þeim skrám (virkar
kannski líka í cpio?).
Endaði sem sé á að bakka upp í uppskipt afio arkíf.
Maður er kannski að verða bakkari! ;-)
Alla vega: mæli með afio.
Bkv.
Böðvar
Þann 5. mars 2010 15:46, skrifaði Bodvar Bjorgvinsson <bodvar ( at ) gmail ( dot ) com>:
> Vandamálið var að diskurinn var formaður sem NTFS. Ég endurformaði
> hann sem FAT32 og losnaði við flestar villur nema í Mail, þar eru
> skrár sem enda á :2,S en tvípunkturinn fer eitthvað í skapið á
> FATtaranum og NTFS. Ég þurfti því að bzippa til þess að komast fram
> hjá þessu. Geri kannski aðra tilraun með cpio og bzip.
>
> Önnur ástæða til þess að forma diskinn sem FAT32 er að DVD spilarinn
> við sjónvarpið les ekki annað í gegnum USB-raufina.
>
> Kærar þakkir aftur.
>
> Böðvar
>
> Þann 15. febrúar 2010 11:27, skrifaði Anna Jonna Armannsdottir <annaj ( at ) hi ( dot ) is>:
>> On Mon, 2010-02-15 at 00:27 +0000, Bodvar Bjorgvinsson wrote:
>>> Ég bakka einstöku sinnum upp hjá mér /home/{user} yfir á USB disk og
>>> nota til þess (frá viðkomandi /home):
>>> tar cf - . | (cd /media/sdb1/folder_of_choice; tar xvf -)
>>> Þetta er frábær leið til að flytja skráakerfi, en ég fæ villumeldingar
>>> á nokkrum möppum í Kmail (./Mail ...) og einstöku öðrum skrám (þ.a.
>>> einstöku jpeg). Meldingarnar eru við hverja slíka skrá:
>>> Cannot open: invalid or incomplete multibyte or wide character
>>>
>>> Ég finn ekkert verulega hjálplegt á vefnum til þess að komast hjá
>>> þessu. Það virðist t.d. vera að obbinn af pósti sem ég geymi varðandi
>>> Lilypond nótna-"engraving" forritið, skili þessari villu. Getur málið
>>> verið það að um sé að ræða UTF-16 og að tar ráði ekki við nema UTF-8?
>>>
>>> Bkv.
>>> Böðvar Björgvinsson.
>>>
>> Sæll Böðvar,
>> það eru til margar aðferðir til að flytja skráarkerfi.
>> Sumar aðferðir ráða ekki við skráarnöfn sem innihalda ýmis
>> tákn eins og millibil, o.s.frv. Sú aðferð sem ég nota langmest
>> notar skipanirnar find og cpio. Þær ráða báðar við öll skráarnöfn
>> með því að aðskilja runur af skráarnöfnum með núll tákni.
>>
>> Afritun milli diska á sömu vél:
>>
>> DISTRO=ubuntu-7.10-server-amd64
>> cd /mnt/${DISTRO} ;
>> find . -xdev -print0 |cpio -0pm /opt/${DISTRO} ;
>>
>> Afritun frá vélinni sem þú ert á núna til t.d. pingu.fsfi.is, mappan
>> /export er afrituð til /scratch/jotunn-export á vélinni pingu.fsfi.is .
>> Til að gera þetta þarf að hafa ssh aðgang að vélinni og skrifaðgang að
>> /scratch/jotunn-export.
>>
>> BLADE=pingu.fsfi.is
>> cd /export && find . -xdev -depth -print0 | cpio -0o -Hnewc | ssh
>> $BLADE "cd /scratch/jotunn-export/ && cpio -i0dum" &
>>
>> Heilu stýrikerfin hafa verið afrituð með þessari aðferð og reynst mér
>> ákaflega vel. Ókosturinn við þessa aðferð er að find skipunin er í
>> /usr/bin möppunni þannig að ef vélin missir /usr skráarkerfið, er ekki
>> hægt að bjarga sér með þessari aðferð.
>>
>> Sé /usr skráakerfið ónothæft er þín aðferð líklega best, því tar er
>> í /bin möppunni.
>>
>> --
>> Kær kveðja, Anna Jonna Ármannsdóttir,
>> Unix Kerfisstjórn, Reiknistofnun HÍ
>>
>>
>
>
>
> --
> "Life is not only a game--it is also a dance on roses."
> --Fleksnes (Rolv Wesenlund)
>
--
"Life is not only a game--it is also a dance on roses."
--Fleksnes (Rolv Wesenlund)