Mér áskotnaðist innsetningardiskur með Linux tímariti fyrir nokkrum mánuðum en hafði ekki notað hann í neitt nema virtual tilraunir á Makkanum mínum. Á honum voru minnst tvö stýrikerfi þ.e. Mandriva og Ubuntu sem kom reyndar í tveimur bragðtegundum þ.e. KDE og Gnome saman (maður getur haft bæði inni og valið hvort maður ræsir upp).
Eitt sem ég vil benda mönnum á í lokin er að mér til happs hafði ég sett heimasvæðin /home á sér disksneið (partition). Þetta kom sér vel núna því allar persónustillingar og gögn voru tilbúin til notkunar strax eftir uppsetningu nýs stýrikerfis. Get ekki annað enn mælt með þessari einföldu reglu við uppsetningu einkatölvu.
Niðurstaða mín er að Ubuntu 9.10 er orðið skrambi gott stýrikerfi verð ég að segja.
Kveðja,
Óli
Bkv, Sveinn í Felli