[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Ubuntu hefur þroskast með 9.10



Mér áskotnaðist innsetningardiskur með Linux tímariti fyrir nokkrum mánuðum en hafði ekki notað hann í neitt nema virtual tilraunir á Makkanum mínum. Á honum voru minnst tvö stýrikerfi þ.e. Mandriva og Ubuntu sem kom reyndar í tveimur bragðtegundum þ.e. KDE og Gnome saman (maður getur haft bæði inni og valið hvort maður ræsir upp). Ég rústaði síðan ferðatölvu hjá mér með óábyrgri uppfærslu á stýrikerfinu (hún varð rafmangslaus í miðju kafi) og notaði þá tækifærið til að byggja hana upp aftur með þessum ágæta dvd disk.

Eftir innsetningu (Ubuntu 9.04) uppfærði ég vélina í Ubuntu 9.10. Ég tók strax eftir að ýmislegt sem virkaði ekki vel áður var farið að virka rétt. Internetið var hraðara og þráðlausa netið var margfallt fljótara að tengja sig. Prófaði svo að tengja aukaskjá við hana og nú virkaði allt eins og það átti að gera þ.e. aukaskjárinn var stillanlegur sem hliðarskjár með eigin upplausn o.s.frv. (var alltaf til vandræða á 8.10). Einnig var hægt að setja skjáinn upp á rönd og láta vélina snúa myndinni um 90 gráður. Þetta virkaði aldrei á Makkanum mínum.

Nú hef ég verið að prófa eitt og annað síðustu daga og verð að segja að framfarirnar eru töluverðar. Svo miklar að ég er búinn að ryðja Makkanum af vinnuborðinu heima og lít varla við honum lengur. Væri til í að selja hann ef ég þyrfti ekki að nota hann í hugbúnaðarprófanir.

Eitt sem ég vil benda mönnum á í lokin er að mér til happs hafði ég sett heimasvæðin /home á sér disksneið (partition). Þetta kom sér vel núna því allar persónustillingar og gögn voru tilbúin til notkunar strax eftir uppsetningu nýs stýrikerfis. Get ekki annað enn mælt með þessari einföldu reglu við uppsetningu einkatölvu.

Niðurstaða mín er að Ubuntu 9.10 er orðið skrambi gott stýrikerfi verð ég að segja.

Kveðja,

Óli