[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: Tar villla: invalid or incomplete multibyte or wide character



Eg er buinn ad profa cpio (gegnum Knoppix Live CD). Flott kerfi, en eg
fae somu villumeldnigar og i tar. Thad er eins og skraakerfid
(ReiserFS) se ad rugla med sumar eldri skrar ef thaer hafa islenska
serstafi - og eins inni i gomlum mail moppum (sem sagt, eldgomlum).
En thetta skiptir ekki svo miklu mali. Get koperad thad a eftir.

Takk fyrir ad benda mer a cpio. Tiltolulega einfalt.

Bodvar

Þann 15. febrúar 2010 06:27, skrifaði Anna Jonna Armannsdottir <annaj ( at ) hi ( dot ) is>:
> On Mon, 2010-02-15 at 00:27 +0000, Bodvar Bjorgvinsson wrote:
>> Ég bakka einstöku sinnum upp hjá mér /home/{user} yfir á USB disk og
>> nota til þess (frá viðkomandi /home):
>> tar cf - . | (cd /media/sdb1/folder_of_choice; tar xvf -)
>> Þetta er frábær leið til að flytja skráakerfi, en ég fæ villumeldingar
>> á nokkrum möppum í  Kmail (./Mail ...) og einstöku öðrum skrám (þ.a.
>> einstöku jpeg). Meldingarnar eru við hverja slíka skrá:
>> Cannot open: invalid or incomplete multibyte or wide character
>>
>> Ég finn ekkert verulega hjálplegt á vefnum til þess að komast hjá
>> þessu. Það virðist t.d. vera að obbinn af pósti sem ég geymi varðandi
>> Lilypond nótna-"engraving" forritið, skili þessari villu. Getur málið
>> verið það að um sé að ræða UTF-16 og að tar ráði ekki við nema UTF-8?
>>
>> Bkv.
>> Böðvar Björgvinsson.
>>
> Sæll Böðvar,
> það eru til margar aðferðir til að flytja skráarkerfi.
> Sumar aðferðir ráða ekki við skráarnöfn sem innihalda ýmis
> tákn eins og millibil, o.s.frv. Sú aðferð sem ég nota langmest
> notar skipanirnar find og cpio. Þær ráða báðar við öll skráarnöfn
> með því að aðskilja runur af skráarnöfnum með núll tákni.
>
> Afritun milli diska á sömu vél:
>
> DISTRO=ubuntu-7.10-server-amd64
> cd /mnt/${DISTRO} ;
>  find . -xdev -print0 |cpio -0pm /opt/${DISTRO} ;
>
> Afritun frá vélinni sem þú ert á núna til t.d. pingu.fsfi.is, mappan
> /export er afrituð til /scratch/jotunn-export á vélinni pingu.fsfi.is .
> Til að gera þetta þarf að hafa ssh aðgang að vélinni og skrifaðgang að
> /scratch/jotunn-export.
>
> BLADE=pingu.fsfi.is
> cd /export &&  find . -xdev -depth -print0 | cpio -0o -Hnewc | ssh
> $BLADE "cd /scratch/jotunn-export/ && cpio -i0dum" &
>
> Heilu stýrikerfin hafa verið afrituð með þessari aðferð og reynst mér
> ákaflega vel. Ókosturinn við þessa aðferð er að find skipunin er í
> /usr/bin möppunni þannig að ef vélin missir /usr skráarkerfið, er ekki
> hægt að bjarga sér með þessari aðferð.
>
> Sé /usr skráakerfið ónothæft er þín aðferð líklega best, því tar er
> í /bin möppunni.
>
> --
> Kær kveðja, Anna Jonna Ármannsdóttir,
> Unix Kerfisstjórn, Reiknistofnun HÍ
>
>



-- 
"Life is not only a game--it is also a dance on roses."
	--Fleksnes (Rolv Wesenlund)