Sælt fólkið.
Ég var að uppfæra með Synaptic, var búinn með eina uppfærslu sem gekk
vel (einhverjar athugasemdir samt), og fór í aðra, en hún strandaði í
miðju kafi. Þegar ég rebootaði (það átti að vera kominn nýr kjarni og
e-ð) þá fékk ég bara console en startx virkaði ekki.
Ég fór þá bara í aptitude og kláraði uppsetningu sem aptitude sagði að
væri tilbúin (6 update). Ætlaði síðan aftur í aptitude til þess að
taka stærri uppfærslu (1300+ pakkar mögulegir) og rebootaði fyrst, en
þá fór hún beina leið í Gnome desktoppinn, nema ekkert samband var við
lyklaborð eða mús og því ekkert annað hægt en að hardware reboota.
Það skilaði mér hins vegar alltaf á sama stað: Gnome ekkert lyklaborð eða mús.
Nú hef ég lítið fengist við GRUB (kunni Lilo) og finn ekki leið til að
stoppa í console (runlevel 3 samkvæmt gömlu reglunni).
Hvernig geri ég það?
Kveðjur
Böðvar Björgvinsson