Ágætis ábendingar hjá Agnari varðandi Microsoft tækni. Það er þó ekki mín reynsla að það sé eitthvað minna mál að setja hana upp og viðhalda. Þvert á móti er vinnan oft á tíðum meiri. Þetta er megin ástæðan fyrir að ég fikraði mig frá Microsoft vörum yfir í frjálsan hugbúnað. Gæðin voru einfaldlega ekki að réttlæta kaupverðið. Ég gaf mér loks tíma á milli jóla og nýárs til að losa mig við Vista stýrikerfið sem ég hafði asnast til að setja upp á vinnu tölvunni minni 2007. Pælingin var að kynnast þessu stýrikerfi vegna viðskiptavinanna. Nú er ég með Ubuntu og hef ekki séð eftir því. Það er algjör draumur að hafa aðgang að þúsundum hugbúnaðarpakka með einfaldri apt-get skipun eða í gegn um Synaptic Package Manager. Við höfum mun meira frelsi nú til að velja og blanda saman kerfum til að leysa margvíslegar áskoranir viðskiptavina.
AppV er áreiðanlega ágætt en samkvæmt vefsíðu Mircrosoft þarf maður að vera í einum af áskriftarpökkunum þeirra. Verðlagning hjá Mircrosoft hefur árum saman verið mjög óskýr og söluaðilar þurfa að hafa á launaskrá sérstaka sérfræðinga í Microsoft samningum sem reyna eftir bestu getu að útskýra fyrir viðskiptavinum öll þau flækjustig sem fylgja leyfiskaupum. Maður vill eiginlega setja tímann í eitthvað annað en þessar tilbúnu gerfiþarfir framleiðandans með skilyrði og reglur út og suður. Það leiðir til þunglyndis að reyna að skilja þetta rugl. Þetta er eins og maður þyrfti að taka prófgráðu í afleiðuviðskiptum til að taka einfalt neytendalán (svo 2007 eitthvað).
Skólar eiga að bjóða upp á opinn og frjálsan hugbúnað, ekki af því hann er ódýrari heldur af því að nemendur eiga að hafa val. Það er óþolandi að skattpeningar okkar eru notaðir til að þjálfa upp sérlega viðskiptavini fyrir tiltekið fjölþjóðafyrirtæki. Með tækni eins og LTSP ofl. er hægt að bjóða upp á allt sem skólarnir þurfa án þess að bindast tilteknum framleiðanda. Áherslan varðandi tölvur á að vera á að kenna fólki tölvulæsi en ekki ýta undir ósjálfstæði þess með einhæfu vali skrifstofuvöndla eins og MS-Office.
Tölvulæsi verður mikilvægara með tímanum. Börn sem læra á tölvur nú eiga rétt á aðgangi að frjálsum hugbúnaði framar öðru sem er á boðstólum upplýsingatækninnar. Í ljósi þess hversu auðvelt er að veita þeim þennan aðgang ætti þetta að vera forgangsmál í skólum landins hvað varðar upplýsingakerfi.
Kveðja,
Óli
On Mon, 2010-02-22 at 01:36 +0000, Agnar Guðmundsson wrote:
AppV