[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]
Re: Vill einhver hjálpa til við að búa til alvöru íslenskt villuleiðréttingarkerfi fyrir Hunspell og OpenOffice.org?
Hæ, hæ
Það má einnig benda á sameiginlegt máltæknisetur HÍ/HR -
http://www.tungutaekni.is/
kv,
Arnar
2010/2/17 Sindri Snær Einarsson <sindri ( dot ) sse ( at ) gmail ( dot ) com>:
> Sæll
> Frábært framtak!
>
> Hugsa að þetta mætti vel falla undir Þróunarsjóð námsgagna
> (http://www.menntamalaraduneyti.is/sjodir-og-eydublod/leikskolar/nr/4365)
> einnig er auðvitað möguleiki á að óska eftir stuðning ráðuneyta Þá með
> skúffu peningum ráð herra eða fjármagni e-h nefnda. en það kostar meiri
> vinnu gæti ég trúað.
> Einnig geturverið að árnastofnun sé með e-h styrki (http://arnastofnun.is/)
> ásamt því gæti vel verið að verkefni sem þetta falli að forsætisráðuneytinu
> þá í tengslum við öll upplýsingartækni málin þar sbr. Netríkið ísland og
> úttekt á OOo .
> Mbk
> Sindri Snær
>
>
> 2010/2/16 Stefán Vignir Skarphéðinsson <stebbiv ( at ) gmail ( dot ) com>
>>
>> Sælir nördar!
>>
>> Mér leiddist eitthvað á sunnudagskvöldið og fór að lesa mig til um
>> hvernig menn gera villuleiðréttingarkerfi fyrir OpenOffice og byrjaði
>> að slá inn kóða eftir smá lestur. Þetta er núna orðið að verkefni á
>> Github og það væri gaman að fá fleiri hendur í þetta verk. Verkefnið
>> er hýst á http://github.com/stebbiv/OpenOffice-Spelling-is/.
>>
>> Öll hjálp, spurningar og athugasemdir vel þegnar!
>>
>> ===Nördaskapur hefst===
>>
>> Markmiðið er að búa til frjálsa orðabók sem virkar beint úr kassanum á
>> OpenOffice og öðrum kerfum sem nota Hunspell-kerfið fyrir
>> leiðréttingar en þar má m.a. nefna Firefox, Opera, Cocoa-forritin í OS
>> X (undir 10.5 og nýrra) ásamt heilum helling af forritum sem ganga á
>> Xorg. –Þannig kæmu öll önnur hugbúnaðarverkefni (bæði opin og lokuð)
>> til með að græða á verkefninu.
>>
>> Planið er að byggja orðabókina upp á einföldum "grunnorðum"; s.s.
>> nafnorðum í eintölu nefnifalli, sagnorðum í 1. pers. et. sem kerfið
>> kemur svo til með að búa til samsett orð úr og finna út föll.
>> (Hunspell er t.d. ansi sniðugt að því leyti að það styður föll, greina
>> og samsett orð). Þannig þarf ekki að díla við heljarlangan orðalista
>> (http://elias.rhi.hi.is/pub/is/ordalisti) eins og flest frjáls
>> leiðréttingakerfi sem díla við íslensku (aspell/ispell) vinna með.
>> –Orðabókin er ekki stór eins og er, en það er bara til að auðvelda
>> þróunina á málfræðikerfinu sem keyrir á bakvið.
>>
>> ==Nördaskapur endar==
>>
>> Málið er að þetta er örugglega ekki eins manns verk og kemur til með
>> að taka ansi langan tíma og mun valda ansi miklum höfuðverkjum fyrir
>> þá sem koma til með að taka þátt m.a. vegna þess að svona verk hefur
>> ekki verið unnið fyrir íslensku áður (fyrir utan Púka) og að það er
>> ekki beinlínis allt fljótandi í handbókum og hjálp á netinu um þessi
>> mál (opinberi póstlistinn fyrir Hunspell er t.d. dauður en
>> tungumálahópurinn hjá OpenOffice.org er sem betur fer lifandi.
>>
>> Hvar mælir fólk með því að maður sæki um styrki og slíkt í svona verk?
>> Ég veit t.d. að Tungutæknisetur (http://www.tungutaekni.is/) er til
>> staðar þó þeir hafi ekki uppfært vefinn sinn í meir en ár og virðast
>> aðallega verið að hjálpa til með að þróa commercial hugbúnað.
>>
>> (Ég reikna með því að flestir hér séu skráðir á openoffice.is listann
>> og aðra íslenska póstlista sem koma þessu við, en fólki er frjálst að
>> áframsenda þetta ef það vill.)
>>
>> --
>> Stefán Vignir Skarphéðinsson
>> stebbiv ( at ) gmail ( dot ) com
>
>