[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Tar villla: invalid or incomplete multibyte or wide character



Sælir.

Ég bakka einstöku sinnum upp hjá mér /home/{user} yfir á USB disk og
nota til þess (frá viðkomandi /home):
tar cf - . | (cd /media/sdb1/folder_of_choice; tar xvf -)
Þetta er frábær leið til að flytja skráakerfi, en ég fæ villumeldingar
á nokkrum möppum í  Kmail (./Mail ...) og einstöku öðrum skrám (þ.a.
einstöku jpeg). Meldingarnar eru við hverja slíka skrá:
Cannot open: invalid or incomplete multibyte or wide character

Ég finn ekkert verulega hjálplegt á vefnum til þess að komast hjá
þessu. Það virðist t.d. vera að obbinn af pósti sem ég geymi varðandi
Lilypond nótna-"engraving" forritið, skili þessari villu. Getur málið
verið það að um sé að ræða UTF-16 og að tar ráði ekki við nema UTF-8?

Bkv.

Böðvar Björgvinsson.