[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: NFTS-3G fyrir Mac?



Sælir

Ég vissi af þessum NTFS-3G hraðavandamálum á G4, og Tuxera (sem sjá um að porta NTFS-3G á Mac) hefur leyst það í sinni söluvöru.
Mér finnst ólíklegt að þeir séu að hægja á frjálsu útgáfunni til að gera sína vöru söluvænlegri, en hvað veit maður...?

Möguleikarnir eru semsagt:
Paragon: Skrifað í samstarfi við MS: €40
http://www.paragon-software.com/home/ntfs-mac/
Tuxera: Notar NTFS-3G+MacFUSE: €25
http://www.tuxera.com/products/tuxera-ntfs-for-mac/
NTFS-3G+MacFUSE OSS í boði Tuxera: Frítt
http://macntfs-3g.blogspot.com/

Ég sé ekki fram á að þurfa að skrifa mikið á þá diska sem ég er með svo að ég ætla bara að halda mig við fría kostinn í bili...

Kveðja
Einar Jón

2010/2/13 Kristján Friðjónsson <k ( dot ) fridjonsson ( at ) gmail ( dot ) com>
Sælir.
MacFUSE með NTFS-3G hefur víst verið að virka ágætlega og er víst nokkuð
stöðugt en mér skilst að hraðinn sé ekkert sérstaklega góður.
Til að fá hraða og stöðugleika mæli ég með Paragon NTFS for Mac. Þeir
eru að þróa þetta í samstarfi við MS og því er þetta official og kostar
smá en þess virði að mínu mati.
http://www.paragon-software.com/home/ntfs-mac/

Kv. Kristján

On Fri, 2010-02-12 at 23:58 +0530, Einar Jón wrote:
> Hæ
>
> Mér datt í hug að spyrja hérna um NTFS read-write drivera fyrir Mac.
> Ég er með tæplega tveggja ára Intel MacBook (OSX Leopard 10.5.8), og
> úr kassanum er bara NTFS lesaðgangur.
>
> Ég setti inn NTFS-3G, en skrifhraðinn er sirka 120/240 MB/mín (með/án
> cache) á USB-tengdum disk, en leshraði er um 2GB/mín. Er þetta
> eðlilegt?
>
> Ég hef notað NTFS-3G á Ubuntu án vandræða í langan tíma.
> Tuxera (sem sér um NTFS-3G á mac) á að vera með mun hraðari driver, en
> rukka fyrir hann.
>
> Hvað eru makkamenn að nota á NTFS-diska?
>
> Kveðja
> Einar Jón