[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

NFTS-3G fyrir Mac?





Mér datt í hug að spyrja hérna um NTFS read-write drivera fyrir Mac.
Ég er með tæplega tveggja ára Intel MacBook (OSX Leopard 10.5.8), og úr kassanum er bara NTFS lesaðgangur.

Ég setti inn NTFS-3G, en skrifhraðinn er sirka 120/240 MB/mín (með/án cache) á USB-tengdum disk, en leshraði er um 2GB/mín. Er þetta eðlilegt?

Ég hef notað NTFS-3G á Ubuntu án vandræða í langan tíma.
Tuxera (sem sér um NTFS-3G á mac) á að vera með mun hraðari driver, en rukka fyrir hann.

Hvað eru makkamenn að nota á NTFS-diska?

Kveðja
Einar Jón