[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: Toshiba ACPI hjálp



> Sæll Þórir
>
> Þetta er þá bara alveg eins og hjá mér. Ég fæ sömu niðurstöður úr acpi
> -V og þessar tölvur (M70-233 og M70-186) eru nánast nákvæmlega eins.
>
> Ég er búinn að komast að því að /proc/acpi/toshiba fylgir toshiba_acpi
> og það eru ekki allar Toshiba tölvur sem geta notað toshiba_acpi. Það er
> gert fyrir tölvur með Toshiba BIOS en það er bara ca. helmingur af
> Toshiba modelum sem hafa BIOS frá þeim. Mín er með BIOS frá Phoenix
> (sést niðri í hægra horninu þegar þú ræsir tölvuna). Þær nota module sem
> heitir omnibook en það virðist enginn vera að maintaina hann. Ertu
> nokkuð með /proc/acpi/omnibook?
>
> Virkaði suspend hjá þér í Jaunty (að ræsa úr suspend)? Ég prófaði að
> boota Jaunty með LiveCD og suspendaði, en gat ekki resumað.
>
>  -- Benedikt
>

Sæll aftur Benedikt.

Ég er líka með Phoenix BIOS.  /proc/acpi lítur svona út hjá mér:

tiny ( at ) lappi:/proc/acpi$ ls -la
total 0
dr-xr-xr-x  11 root root 0 2010-01-21 02:29 .
dr-xr-xr-x 166 root root 0 2010-01-21 02:29 ..
dr-xr-xr-x   3 root root 0 2010-01-21 02:47 ac_adapter
dr-xr-xr-x   3 root root 0 2010-01-21 02:47 battery
dr-xr-xr-x   4 root root 0 2010-01-21 02:47 button
-r--------   1 root root 0 2010-01-21 02:47 dsdt
dr-xr-xr-x   3 root root 0 2010-01-21 02:47 embedded_controller
-r--------   1 root root 0 2010-01-21 02:29 event
-r--------   1 root root 0 2010-01-21 02:47 fadt
dr-xr-xr-x   2 root root 0 2010-01-21 02:47 fan
-r--r--r--   1 root root 0 2010-01-21 02:47 info
dr-xr-xr-x   2 root root 0 2010-01-21 02:47 power_resource
dr-xr-xr-x   3 root root 0 2010-01-21 02:47 processor
-rw-r--r--   1 root root 0 2010-01-21 02:47 sleep
dr-xr-xr-x   2 root root 0 2010-01-21 02:47 thermal_zone
dr-xr-xr-x   3 root root 0 2010-01-21 02:47 video
-rw-r--r--   1 root root 0 2010-01-21 02:47 wakeup


Ég fór í smá leiðangur um Google og komst þá að eftirfarandi.

Omnibook modulnum er haldið við af Julien Valroff (www.kirya.net)

Það eru leiðbeiningar um hvernig á að installa þessum module í
commenti númer 22, í þessum þræði hér:
https://bugs.launchpad.net/ubuntu/+source/linux-source-2.6.22/+bug/45021

Og hér var óskað eftir því að kóðanum úr omnibook modulnum verið bætt
í Toshiba Laptop Extras pakkann:
http://bugzilla.kernel.org/show_bug.cgi?id=14712

Ef þú prófar að installar þessu þá máttu endilega deila reynslunni af
því með okkur hinum.

Bestu kveðjur,
Þórir Már