[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Vandræði með gnome-panel eftir uppfærslu úr Ubuntu 9.04 í 9.10



Eftir að ég uppfærði Ubuntu í 9.10 í haust þá hef ég verið að lenda í
því öðru hvoru að gnome-panel opnar bara tómar stikur (stikurnar efst
og neðst á skjánum) og ekkert til ráða annað en að gera >killall
gnome-panel.  Þetta virðist nú vera farið að gerast í hvert skipti sem
ég endurræsi tölvuna (sem gerist mun oftar en ég vildi þar sem suspend
er líka hætt að virka nema endrum og sinnum).

Mig langaði að heyra hvort fleiri hér hafi verið að lenda í þessu og
þá hvort menn hafi einhverja lausn á þessu saklausa, en þó hvimleiða,
vandamáli.

Kv.
Þórir Már