|
Sæll
Bjartur og takk fyrir skeytið, Nefndarmaður
skólanefndar Kópavogsbæjar sendi inn fyrirspurn varðandi opinn hugbúnað fyrir
skömmu sem ég svaraði með meðfylgjandi minnisblaði. Afstaða Kópavogsbæjar er það
eigi að nota “réttasta” hugbúnaðinn á hverjum stað á hverjum tíma
en hvað er réttur hugbúnaður á hverjum tíma er oft erfitt að ákveða. Það sem
hefur áhrif á ákvarðanatöku eru m.a. eftirfarandi atriði; kostnaður,
einfaldleiki í notkun, útbreiðsla, þekking notenda, stuðningur þjónustuaðila,
öryggi, osfrv. Varðandi
upptöku opins hugbúnaðar í skólum þá er það eitthvað sem stjórnast almennt af
skólastjórnendum, tölvuumsjónarmönnum og tölvukennurum. Nokkrir starfsmenn
skólanna hafa lýst áhuga á því að bjóða nemendum upp á meira úrval af hugbúnaði
en nú er gert og er það hið besta mál en það gæti þó orðið erfitt því eins og
þú veist þá er niðurskurður á flestum stöðum í þjóðfélaginu og mun hann meðal
annars bitna á tímafjölda tölvuumsjónarmanna. Ég
fagna þessu erindi frá þér og er ánægður að sjá að það er gróska í þessum
hlutum og að ungir krakkar eins og þú og aðrir á rglug.org séu að láta sig
þessi mál varða. Framundan er tími þar sem hugvit og nýsköpun mun skipta miklu
máli. Kveðja, Sæmundur
Valdimarsson Forstöðumaður
upplýsingatæknideildar Kópavogsbær
- Fannborg 2 - 200 Kópavogur Sími
570-1582 - GSM 840-9136 Þessi tölvupóstur og viðhengi gæti innihaldið
trúnaðarupplýsingar og/eða einkamál og er eingöngu ætlaður þeim sem hann er
stílaður á. Ef sending þessi hefur ranglega borist yður vinsamlega gætið fylsta
trúnaðar, tilkynnið sendanda og eyðileggið sendinguna eins og skylt er skv. 9.
mgr. 47. gr. laga nr. 81/2003 um fjarskipti. The information transmitted, including any attachment, may
contain confidential and/or privileged material and is intended only for the
addressee. If you receive this in error, please keep the information
confidential, contact the sender and delete the material from your system. From: Þjónustuver Kópavogsbæjar Sent: 12.1.2010 08:09:36 To: rglug ( at ) rglug ( dot ) org CC: Sæmundur Valdimarsson Subject: RE: www.kopavogur.is: Frjáls hugbúnaður í
skólum Kópavogs Fyrirspurn þín
var send upplýsingatæknideild til afgreiðslu. |
Attachment:
Svar við erindi 8a frá skólanefnd.docx
Description: =?iso-8859-1?Q?Svar_vi=F0_erindi_8a_fr=E1_sk=F3lanefnd.docx?=