[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]
RE: www.kopavogur.is: Frjáls hugbúnaður í skólum Kópavogs
Fyrirspurn þín var send upplýsingatæknideild til afgreiðslu.
Kveðja,
Jónína Guðrún Einarsdóttir
Þjónustuver Kópavogs
Fannborg 2
s- 570-1500
-----Original Message-----
From: Bjartur Thorlacius [mailto:rglug ( at ) rglug ( dot ) org]
Sent: 11. janúar 2010 19:40
To: Þjónustuver Kópavogsbæjar
Subject: www.kopavogur.is: Frjáls hugbúnaður í skólum Kópavogs
Þetta er fyrirspurnar póstur gegnum http://www.kopavogur.is frá:
Bjartur Thorlacius <rglug ( at ) rglug ( dot ) org>
Hver er staða upptöku frjáls hugbúnaðar í menntakerfi Kópavogs og í sveitarfélaginu almennt?
Er verið að kanna hvernig megi nýta frjálsan hugbúnað til að spara pening í kreppunni og kynna nemendum opnari og frjálsari hugbúnað.
Það er einkum mikilvægt að kynna frjálsan hugbúnað fyrir nemendum a.m.k. til jafns við lokaðan séreignarhugbúnað til að koma í veg fyrir læsingu og svo nemendur fái tækifæri til að kanna hvernig hugbúnaðurinn virkar :)
Einnig tel ég að þetta gæti lækkað IT-kostnað, þar sem það er einfaldara að sjá um GNU/Linux kerfi. Svo þarf ekki að borga leyfisgjöld og Linux er almennt léttari á Vélbúnað en Windows NT, þannig að hægt væri að spara meira í vélbúnaðarkaupum en annars. Sbr. sparnað Þjóðleikhússins og VMA.
Svo langar mig að enda þessi (full)-löngu skilaboð á því að kvarta yfir því að í tölvukennslu í a.m.k. barnaskóla sé of mikið úr því að leggja menu-entry undir "File" og "Edit" á minnið. Tilgangslaus fróðleikur sem er úreltur síðan MS Office 2007 kom út, og jafnvel aftur vegna MS Office 2010. Og þegar ég kemst loks á vinnumarkaðinn gæti Office 2015 verið á næsta leiti. Krakkar græða lítið á tölvukennslu nema vélritun.
Kveðja,
Bjartur
http://www.forsaetisraduneyti.is/upplysingasamfelagid/Frettaannall/nr/2878