[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: Microsoft veitir Íslandi afslátt



Sælt veri fólkið;

Smári McCarthy wrote:
> 
> 
> Microsoft hefur ákveðið að öll viðskipti við Íslendinga miðist við að
> evran kostaði 120 krónur. Það er mun minna en raunverulegt gengi er á
> markaði. Hjá Seðlabankanum kostar evran um 175 krónur en 215 krónur hjá
> Seðlabanka Evrópu.
> 
> 120 króna gengi Microsoft þýðir að vörur frá fyrirtækinu verða talsvert
> ódýrari en þær hefðu orðið ella. Í tilkynningu frá Microoft á Íslandi
> segir að þetta komi sér vel fyrir þúsundir íslenskra fyrirtækja og
> stofnanna sem eru með fasta leyfissamninga við Microsoft.
> 
> 
> http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item237870/
> 
> 
> 
> "Í ljósi hins göfuga útspils Microsoft um að miða verð sín við gamalt
> gengi á evrunni hefur frjálsi heimurinn ákveðið að halda áfram að gefa
> hugbúnaðinn sinn frítt eins og hann hefur gert alla tíð. Mun þá nýjasta
> útgáfa af Ubuntu Linux sem kom út í Október kosta 0 krónur, og
> sömuleiðis munu Firefox vafrinn og OpenOffice.org skrifstofupakkinn vera
> fríkeypis áfram."
> 
>   - Smári

Í beinu samhengi við þetta??: ég heyrði að skólayfirvöld í
framhaldsskólunum hefðu fengið enn eina beiðnina um sparnað
í rekstri; að skoða nú alvarlega opinn hugbúnað með
endurskoðun ofangreindra leyfissamninga í huga!
Býst við að þetta séu m.a. viðbrögð við slíkum tröllasögum.
Þekki til í einum skóla sem er með ýmsar þreifingar í þessa átt.

Bkv, Sveinn í Felli