[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: rglug: Re: rglug: Re: Round Robin



Þann 2008-11-18, 12:06:56 (+0100) skrifaði Arnar Birgisson:
> 2008/11/18 Bjarni R. Einarsson <bre ( at ) klaki ( dot ) net>:
> >> > Og þá í beinu framhaldi; hvað með "best-effort packet
> >> > switching" ? Mér datt í hug "Mestu/Bestu afköst
> >> > pakkabeiningar" en finnst það eitthvað skelfilegt drumbatal.
> >
> > Þetta er líka rangt.
> >
> > "Best-effort" þýðir "eftir bestu getu".  Þessi aðferð gefur ekki
> > endilega bestu afköst eða hámarksafköst.  Hún getur jafnvel gefið
> > engin afköst, ef getan er ekki til staðar af e-m ástæðum.
> 
> "Eftir bestu getu" er bein þýðing á "best-effort" .. en
> "hámarksafköst" lýsa betur því sem þetta tiltekna hugtak gengur út á.

Aftur, nei. :)

Best-effort felur m.a. í sér að hver beinir í kerfinu tekur ákvarðanir
algjörlega sjálfstætt, án tillits til aðstæðna annarsstaðar á netinu.  
Hann vinnur "eftir bestu getu" hverju sinni, en það getur hæglega leitt 
til að hann taki rangar ákvarðanir sem leiða til pakkataps annarsstaðar 
á netinu með tilheyrandi afkastaskerðingu.

Til eru aðrar aðferðir sem forðast slíka árekstra, en eru minna notaðar
af sögulegum og tæknilegum ástæðum - aðferðir sem komast nær fræðilegum
"hámarksafköstum" heldur en bestu-getu algrímin geta nokkurntímann gert.

Hér er t.d. eitt dæmi: 
http://www.packet.cc/larry-news/Is%20Best%20Effort%20IP%20Really%20Economic2.htm

"Best-effort" er einnig oft notað í QoS kerfum til að lýsa samskiptum
sem mæta afgangi.  Hámarksafköst fengjust með því að vera í hæsta QoS
flokki, meðan "best-effort" fær leifarnar af bandvíddinni og nær 
hámarksafköstum þá og því aðeins að enginn mikilvægari sé að nota netið.

"Best-effort" er gaurinn sem reynir að hjóla eins hratt og hann getur,
kann ekki að skipta um gír og lætur sér ekki detta í hug að kaupa sér
mótorhjól.  Ef hann nær hámarksafköstum, þá er það bara heppni. :-)

Að rugla þessum hugtökum saman er mjög, mjög rangt.

-- 
Bjarni Rúnar Einarsson
 bre ( at ) klaki ( dot ) net
 http://bre.klaki.net/

PGP: 02764305, B7A3AB89