[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: Round Robin



-----BEGIN PGP SIGNED MESSAGE-----
Hash: SHA1

"Lotubundið" felur samt ekki í sér að öll stök hafi sömu lotu. T.d. í
slembifærslufylkinu:

[   0  1/2  1/2   0 ]
[   0    0   0    1 ]
[   0    0   0    1 ]
[   1    0   0    0 ]

Hér hafa stök 1 og 4 fasta lotu (3ja hvert stökk) en ekki 2 og 3.

En "Lotulykkja" eða "Samloturöðun" eða álíka gæti virkað...

 - Smári



Sveinn í Felli (IMAP) wrote:
> Sælt,
> 
> Arnar Birgisson wrote:
>> Hæbb,
>>
>> 2008/11/18 "Sveinn í Felli (IMAP)" <sveinki ( at ) nett ( dot ) is>:
>>> Er einhver hér með góða þýðingu á hugtakinu "Round Robin" ?
>> Er þetta í samhengi við scheduling? Ef svo, hvernig þýðirðu
>> scheduling? Mér dettur í hug að byggja á orðinu "lota" - en ég er ekki
>> með orðabók til að skoða hvernig það er nákvæmlega skilgreint. Er ekki
>> eitthvað gott orð úr spilamennsku (bridds, póker,...)?
>>
> Upphaflega skilgreiningin á ensku kemur úr barnahópleikjum;
> þegar röðin kemur að einstaklingnum aftur og aftur innan
> einhvers ramma. Krikket má taka sem dæmi, þá kemur röðin að
> manni aftur einhverntíma  í næstu viku.... :)
> "Lota" gæti gengið, "umferð" hugsanlega líka.
> Jú, þetta er tengt "scheduling" - skársta heila orðið yfir
> það sem ég hef séð á íslensku er "verkröðun" en er þó víðara.
> 
>>> Og þá í beinu framhaldi; hvað með "best-effort packet
>>> switching" ? Mér datt í hug "Mestu/Bestu afköst
>>> pakkabeiningar" en finnst það eitthvað skelfilegt drumbatal.
>> Sammála því. Fyrst var ég ekki viss um að "afköst" væri rétta orðið..
>> en eftir að hafa rifjað upp skilgreininguna á best-effort þá er það
>> líklega bara réttast. Það er örlítið þjálla að segja "hámarksafköst"
>> heldur en "Mestu/bestu afköst" finnst mér.
> 
> "Pakkabeining" er eitthvað sem ég sá einhversstaðar,
> hugsanlega á það meira við "packet routing", held það sé
> nógu almennt til að geta átt við "switching" líka.
> "Best-effort" er náttúrulega "af bestu getu" en spurningin
> er meira hvort þetta hafi einhversstaðar fengið íslenska
> skilgreiningu áður ?
>> Sorry að þetta eru engar bitastæðar tillögur.. bara breinstorm (annað
>> orð sem hefur árangurslaust verið reynt að þýða vel).
>>
>> kv,
>> Arnar
> 
> bkv, sv1
> 
> 


- --
Smári McCarthy
smari ( at ) yaxic ( dot ) org   http://smari.yaxic.org
(+354) 662 2701   - "Technology is about people"
-----BEGIN PGP SIGNATURE-----
Version: GnuPG v1.4.9 (GNU/Linux)
Comment: Using GnuPG with Mozilla - http://enigmail.mozdev.org

iEYEARECAAYFAkkippcACgkQ9cJSn8kDvvF/KwCgwUUdDWnM74H7bsw3LpROf55Q
xQMAn37mXVmGqdBa+cOV2n1jCFv+lU4z
=zdqW
-----END PGP SIGNATURE-----