[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: rglug: Re: Round Robin



2008/11/18 Bjarni R. Einarsson <bre ( at ) klaki ( dot ) net>:
>> > Og þá í beinu framhaldi; hvað með "best-effort packet
>> > switching" ? Mér datt í hug "Mestu/Bestu afköst
>> > pakkabeiningar" en finnst það eitthvað skelfilegt drumbatal.
>
> Þetta er líka rangt.
>
> "Best-effort" þýðir "eftir bestu getu".  Þessi aðferð gefur ekki
> endilega bestu afköst eða hámarksafköst.  Hún getur jafnvel gefið
> engin afköst, ef getan er ekki til staðar af e-m ástæðum.

Þetta var mín fyrsta hugsun líka. Hins vegar er "best-effort packet
scheduling" algrím sem gefur þér hámarks möguleg afköst, þar sem
"afköst" eru skilgreind af application með einhverjum hætti. T.d.
getur voip application beðið um lágmarks-latency, og "best-effort"
algrím hagar sér þá þannig að þú fáir lægsta mögulega latency.

"Eftir bestu getu" er bein þýðing á "best-effort" .. en
"hámarksafköst" lýsa betur því sem þetta tiltekna hugtak gengur út á.

Ath. einnig að "hámarksafköst" geta vel verið núll - ef getan er
engin. Það má því með hártogunum segja að það sé enginn munur á "eftir
bestu getu" og "hámarksafköstum".

kv,
Arnar