Í dag laugardag, heldur listforritunarhátíðin Pikslaverk áfram í Hafnarhúsi Listasafns Reykjavíkur. Ekki missa af þessum þremur atburðum ef þú hefur vott af áhuga á samtímalist, forritun eða uppfinningasamri raftónlist ...
Douglas Edric Stanley (FR/US) segir frá verkum sínum og tengslum samtímalistar og forritunarkóða kl. 15:00 í Hafnarhúsi. Douglas er sérstaklega skemmtilegur listamaður og ekki síðri fyrirlesari. Alls ekki missa af þessu! http://www.abstractmachine.net/blog/
LoudObject (US) er listahópur frá New York sem fremur hljóð- gjörning/tónleika á sama stað að fyrirlestrinum loknum. Þetta lofar mjög góðu eins og sjá má hér: http://www.loudobjects.com/
Stefan Nussbaumer (AU) kynnir síðan, á sunnudag kl. 15:00, Ubermorgen-hópinn stórmerka og hið hressa mynd- og tón-listaverk Sounds of Ebay. Ómissandi! http://www.ubermorgen.com/2007/ index.html og http://www.sound-of-ebay.com/100.php
Allir velkomnir! Enginn aðgangseyrir!
Þeir sem vilja kynna sér forritun og möguleika hennar í listsköpun ættu síðan að smella sér á opin "workhop" sem Nussbaumer og Páll Thayer halda í LHÍ í Lauganesi á laugardag frá 10-13 og aftur á sunnudag 10-13.
Hér er heimasíða hátíðarinnar: http://pallit.lhi.is/pikslaverk/ Og dagskráin síðan hér: http://pallit.lhi.is/pikslaverk/program.pdf
kkv. r.
- - - - - - - - - - - - Ragnar Helgi Ólafsson Tel: [+354] 822 48 58 ragnar ( dot ) helgi ( at ) gmail ( dot ) com
Attachment:
Picture 2.png
Description: application/applefile
-- Pall Thayer palli ( at ) pallit ( dot ) lhi ( dot ) is http://www.this.is/pallit