[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Ráðstefna um forritun og listir



Fimmtudaginn, 6. nóv. Hefst ráðstefnan Pikslaverk (http:// www.pikslaverk.org). Ráðstefnan mun skoða þá nýbreytni listamanna að notast við tölvur og forritun í listsköpun sinni frá ýmsum hliðum. Margir þeirra listamanna sem fást við tölvuforritun notast við opin og frjáls tól. Það er meira að segja til sérstök Debian dreyfing (dyne:bolic - http://dynebolic.org/) sem ætluð er listamönnum. Einnig má nefna forritunarumhverfi á borð við Pure Data (BSD leyfi), Processing (GPL og LGPL leyfi) og SuperCollider (GPL leyfi).

Fæstir þeirra listamanna sem fást við þessa sköpun hafa nokkra formlega menntun í forritun. Í stað þess hafa þeir gríðarlegan áhuga og vilja til að afla sér upplýsinga og þekkingar hvar sem hana er að finna. Útkoman verður því oft öfugsnúin og allt annað en það sem fólk ímyndar sér þegar það hugsar um forritun.

Setning ráðstefnunar verður Fimmtudag, 6. nóv. kl. 20 í hafnarhúsinu. Aðgangur er ókeypis og öllum er frjálst að mæta. Það verður boðið upp á léttar drykjar-veitingar. Svo stendur ráðstefnan yfir til sunnudags. Á föstudag verða mjög áhugaverðir fyrirlestrar og performance með Amy Alexander, Bandarísk listakona og prófessor við UCSD háskólann í Kaliforníu (hún er þekkt nafn í þessum geira) og svo bara heldur þetta áfram...

Ég hvet sem flesta til að mæta og kynna sér "hina hliðina" á málinu.

Vefur ráðstefnunar er á http://www.pikslaverk.org og dagskráin er á http://www.pikslaverk.org/program.pdf

Látið fleiri vita.

--
Pall Thayer
palli ( at ) pallit ( dot ) lhi ( dot ) is
http://www.this.is/pallit