[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]
RE: 3G pungur Nova á Ubuntu
Frábært framtak. Hef verið að nota Ubuntu nú um nokkurt skeið og verð ef
eitthvað er alltaf ánægðari með það. Kemst næst því að kallast plug and play
af þeim Linux kerfum sem ég hef prófað. LTSP er algjör snilld á Ubuntu, það
bara virkar.
Vil einnig vekja athygli á einu Open Source kerfi sem ég hef prófað hérna á
netinu okkar og bara virkaði án nokkurs vesens en það er Likewise. Notað til
að tengjast Active Directory þjónustum. Svona tækni getur verið lykillinn að
því að fá Linux vélar inn á netkerfi sem AD gín yfir.
Fékk póst frá forstóra Likewise í gær en hann minntist sérstaklega á Ísland
í bréfinu en þetta var svona dæmigert dreifibréf til skráðra notenda. Taldi
Ísland komið á hausinn en ég sendi honum línu til að leiðrétta það þó þetta
sé reyndar hugsanlega rétt hjá honum. Hvað sem því líður talaði hann um að
nú væru tækifæri fyrir Open Source og það er alveg örugglega rétt hjá honum.
Ekki pukra með Linuxinn ykkar og segið fólki frá og sýnið því allt það góða
sem er gert og hægt er að gera með opnum hugbúnaði. Á næstunni verður
auðveldara að ná athygli þeirra sem halda um pyngjurnar.
Kveðja,
Óli
-----Original Message-----
From: Ævar Arnfjörð Bjarmason [mailto:avarab ( at ) gmail ( dot ) com]
Sent: 23. október 2008 20:48
To: rglug
Subject: 3G pungur Nova á Ubuntu
Ég var að senda breytingu á Ubuntu (og aðra sem nota NetworkManager) þannig
auðveldara verði að setja upp 3G pung Nova á því kerfi, eftir hana er hvergi
auðveldara að setja upp tækið en á Ubuntu, en það er
einfaldlega:
1. Stinga honum á samband
2. Já, ég er á Íslandi og hjá Nova
3. Ýta á OK
Hérna eru leiðbeiningarnar:
http://flickr.com/photos/avarab/sets/72157608313186603/
Ég sendi einnig póst á Nova og benti þeim á að uppfæra
http://www.nova.is/verslun/pages/yfirlit.aspx?vara=modem svo þar stæði að
hann virkaði á Linux.