[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

LTSP fréttir (disklausar útstöðvar)



Sælir Linux áhugamenn,
Við vorum að ræða uppsetningar á LTSP vélum fyrir einhverjum vikum en síðan þá hefur margt gott gerst sem menn hafa kannski áhuga á að lesa um.
 
Adam Óskarsson kerfisstjóri Verkmenntaskólans á Akureyrir hafði samband í lok júlí ef ég man rétt og hafði áhuga á að prófa LTSP hjá VMA. Við drifum okkur í verkefnið en lesa má um það hér:
 
 http://www.ikon.is/ikon/content/view/134/1/lang,is/ 
 
og hér
 
http://www.ikon.is/ikon/content/view/135/1/lang,is/
 
Það sem er kannski skemmtilegast við þetta er að sjá nemendurna nota kerfin án nokkurar kynningar eða aðstoðar. Adam hefur tekið þá stefnu að bara skilja vélarnar eftir hér og þar í gangi og svo hafa nemendurnir bara skráð sig inn með sínum aðgangsheimildum. Það eru komnir bara nokkrir dagar á þetta og yfir 30 nemendur eru greinilega búnir að logga sig inn á kerfið.
 
Af samtölum mínum við kerfisstjóra og af lestri greina í tímaritum virðist vera að koma upp ný kynslóð af tölvunotendum sem er nákvæmlega sama hvaða árans stýrikerfi er á tölvunni. Tölvan er bara tól sem þau nota til í samskipti, upplýsingaöflun, afþreyingu og verkefni. Því yngri sem notendurnir eru því aðlögunarhæfari eru þeir og minna að spá í merkimiðana.
 
Við sjáum svo þegar líður á veturinn hversu mikla notkun vélarnar fá og hvernig viðhaldsútkoman verður hjá Adam.
 
Kveðja,
 
Ólafur