[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: LTSP og Opinn hugbúnað ur og Linux og allt það



Title: Re: LTSP og Opinn hugbúnaður og Linux og allt það
Við höfum opið tilboð til skóla, þ.e. fyrsti skólinn sem tekur þetta inn fær ókeypis uppsetningu á einum LTSP með en skaffar vélbúnaðinn. Við takmörkum þetta við uppsetningu á LTSP og staðfæring á netinu er ekki innifalin nema þá sem almennar leiðbeiningar. Þetta er í raun bara Edubuntu með Open Office, Firefox ofl. sem hentar skólum vel. Tilboðið gildir út ágúst í það minnsta.

Við erum að fá mikilvæga svörun frá netkaffinu í laugardalnum en þar kemur mikill fjöldi ferðamanna sem láta reyna á kerfið. Það var þarna XP og Antamedia netkaffi þjónn og ferðamennirnir voru margir hverjir glúrnir powerusers og hökkuðu XP sundur og saman. Það þurfti að aftengja delete hnappinn þar sem menn notuðu Ctrl-Alt-Delete til að komast “undir húddið”. Ekkert sem útilokar svo sem að svipað gerist í LTSP en við stilltum þessu upp þannig að það er sjálfhreinsandi og nú er enginn diskur í vélunum til að “leika sér með”. Við erum búnir að lenda í smá hardware vandamálum en það virðist hafa leysts með nýjum disklausum vélum sem settar voru upp. Gömlu vélarnar voru úr sér gengnar greyin eftir aðeins 2ja ára notkun.

Glúrnir Unix menn mega kíkja þarna og gá hvort þeir geti brotist “undir húddið” en í gvuðana bænum ekki skemma neitt ef ykkur tekst það. Látið okkur bara vita af glufunni. Ég skal útvega ókeypis aðgang fyrir þá sem vilja reyna sig.

Kveðja,

Ólafur


On 7/30/08 12:50 PM, "Kjartan Bergsson" <kjartanb ( at ) gmail ( dot ) com> wrote:

Sæll Ólafur, mjög áhugavert framtak hjá þér. Ég hef oft hugsað á þessum nótum, þ.e. að koma á fót fyrirtæki sem ynni með og veitti Linux og Open Source þjónustu.  
 
Vaðrandi fundarsal með tölvum, það þarf ekki margar til að demóa terminal server.  Væri ekki möguleiki að semja við einhvern skólann, eða félgasamtök sem þú vilt fá í viðskipti við um að lána tölvuver þeirra til þessa út á einhvern greiða eða þjónustu í staðinn.
 
kk
Kjartan Bergsson
 
Þann 28.7.2008, skrifaði Ólafur Garðasson<oli ( at ) ikon ( dot ) is>:
Sælir,
Ég rakst á umræður ykkar ofl. á netinu um skolelinux þ.e. LTSP frá því 2005 og mér datt í hug að hafa samband og heyra í ykkur hljóðið. Þannig er mál með vexti að ég rek fyrirtækið Íkon ehf og hef í mörg ár verið að nýta Linux til ýmissa verkefna svo sem eins og eldveggi ofl. Rek einnig vefþjóna og póstþjóna og slíkt á Linux. Hef einnig lengi verið að þjónusta Windows netkerfi og þekki þau kerfi inn og út. Við höfum á þessu ári snúið okkur nánast alfarið að Linux og erum orðnir hálfgerðir trúboðar í þessu en skoða má hluta af mínum pælingum hér á vefsíðu fyrirtækisins www.ikon.is <http://www.ikon.is> .

Ég var á ferð í Marokkó í júní síðastliðnum og hélt þar smá tölu fyrir nokkrum "áhugasömum tölvumönnum" (lesist tölvunördar) um það sem við værum að gera hjá Íkon. Þegar talið barst að disklausum útstöðvum varð eins og "sprenging" í fundarsalnum og þeir vöknuðu til lífsins þrátt fyrir hitamókið í Casablanca á þessum tíma. Allir vildu vita meira um þetta og ákveðið var að ég héldi annan fyrirlestur nokkrum dögum seinna sem ég og gerði. Þetta vakti mig til umhugsunar um hvernig er best að kynna þessa tækni og hef ég því verið að senda út bréf á tölvumenn út um allar trissur til að hækka vitundarstigið gagnvart LTSP. Ég hef verið kallaður til að halda tölu um þetta á ráðstefnu í Hollandi í október eftir að ég minntist á þetta á mailinglista sem ég er á.

Það er einhver undiralda í gangi þessa dagana og Linux er í mikilli sókn. Ég hef notað og fylgst með Linux frá því ég kynntist því í Bandaríkjunum 1997 og aldrei séð svona mikinn áhuga og umræður áður. Ég held að útbreiðslan hafi náð krítískum massa og Vista stýrikerfi Microsoft var eins og bensín á Linux glóðirnar.

Ég þarf að komast í betra samband við aðra Linux atvinnumenn wanabees. Við erum að gera þetta að okkar aðal atvinnu og það verður nóg af verkefnum fyrir alla. Ég stefni á að sannfæra einhverja skóla til að prófa LTSP og við erum að bjóðast til að setja ókeypis upp fyrsta LTSP kerfisþjóninn. Við settum nýverið upp netkaffi með LTSP hjá farfuglunum í Laugardalnum og það gengur mjög vel. Ég held að það sé fyrsta Linux netkaffið á íslandi en þið kannski látið mig vita ef þið getið staðfest það eða afsannað. Verið endilega í sambandi við mig, því ég vil bæði vera þátttakandi í umræðunni og hafa aðgang að mönnum sem hugsanlega hafa áhuga á að taka að sér verkefni á þessu sviði fyrir skóla og fyrirtæki.

Akkúrat núna vantar mig fundarsal með tölvum til að demonstrera LTSP. Vil hafa eitthvað klárt til að sýna fólki. Einhverjar hugmyndir?

Bestu kveðjur,

Ólafur Garðarsson

ÍKON EHF og EDAL.NET <http://EDAL.NET>  - Vefhýsing
Nýbýlavegur 6, 200 Kópavogur
Iceland www.ikon.is <http://www.ikon.is>   | www.edal.net <http://www.edal.net>
Sími / Phone (+354) 555-1693