[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: LTSP og Opinn hugbúnaður og Linux ogalltþað



Hæ, hæ,

2008/7/30 Olafur Gardarsson <oli ( at ) ikon ( dot ) is>:
> Gaman að lesa þessa sögu Arnar. Ég hef ekki enn rekist á PC vél framleidda
> eftir 2003 sem hefur ekki PXE möguleikann í BIOS en þetta er happa og glappa
> á eldri vélum.

Jámm, markmiðið hjá okkur var að nota gamlar 200-400 MHz vélar.

> Ég er forvitinn, hvað voruð þið að nota útstöðvarnar í? Þetta hlýtur að vera
> léttara í keyrslu þegar ekki þarf að keyra upp Gnome eða KDE. Ég hef áhuga á
> að prófa þetta fyrir svona "einhæfis" notkun þar sem notendurnir eiga bara
> að hafa aðgang að tilteknu kerfi.

Gluggastjórinn og desktop-manager er allt keyrt á miðlæga þjóninum,
svo það er non issue. Það eina sem er keyrt á útstöðvunum er X11
server. Þjónninn, sem var (og er sennilega enn) Debian, exportaði NFS
filesystem sem var rót fyrir útstöðvarnar. Þær bootuðu á floppy, hlóðu
upp ramdisk sem ræsti linux og skipti svo út root fyrir NFS mountið,
og enduðu á að keyra upp X11 með "xserver -query x11master.domain.is".
Þar með tengdist útstöðin þjóninum sem skaffaði login glugga frá gdm,
sem ræsti xfce gluggastjórann eftir login, hvort tveggja keyrt á
masternum. Ástæðan fyrir því að ég valdi XFCE var að það lúkkaði vel
og gnome eða kde var overkill þar sem það eina sem þurfti var að keyra
browser.

Og það var basically eina hlutverk þessara útstöðva, að keyra browser.
Þær voru staðsettar hér og þar í verksmiðju (prentsmiðju nánar
tiltekið) og aðallega notaðar við tímaskráningar í þar til gert
vefforrit. En fólk var að nota þetta fyrir almennt browsing líka. Þær
réðu eðlilega ekki við vídjó og áttu stundum í erfiðleikum með síður
sem voru graphic heavy (og þjöppuðust þar með illa á X11 protocolnum).

Ef ég man rétt var masterinn um 2 Ghz með 2 eða 4 Gb í minni, og hann
var að þjónusta allt að 30 svona útstöðvar þar sem allir keyrðu eitt
instance af Firefox, með alveg þokkalegum árangri. Það eina sem við
lentum í var að stundum krassaði session og þá varð eftir zombie
firefox process. Þegar sama útstöð loggaði sig inn aftur gat hún því
ekki ræst firefox því prófíllinn var læstur (prófíllinn var valinn
skv. ip-tölu útstöðvarinnar).

> Er þetta ekki sami Arnar og skammaði mig fyrir að hafa opið DNS relay á DNS
> þjónum hjá mér fyrir nokkrum mánuðum. Það var þörf ábending og við löguðum
> það í kjölfarið :o)

Hmm, man nú ekki eftir því, en það má vel vera :) Held ekki samt.

kv,
Arnar