Gaman að lesa þessa sögu Arnar. Ég hef ekki enn rekist á PC vél framleidda
eftir 2003 sem hefur ekki PXE möguleikann í BIOS en þetta er happa og glappa á
eldri vélum. Við notum reyndar Win 2003 netþjón fyrir DHCP hjá okkur. Það var
lítið mál að bæta við þessum DHCP færslum sem þurfti fyrir LTSP en þið hafið
kannski þurft öðruvísi færslur eða verið með eldri gerð af Windows
þjón.
Ég er forvitinn, hvað voruð þið að nota útstöðvarnar í? Þetta
hlýtur að vera léttara í keyrslu þegar ekki þarf að keyra upp Gnome eða KDE. Ég
hef áhuga á að prófa þetta fyrir svona "einhæfis" notkun þar sem notendurnir
eiga bara að hafa aðgang að tilteknu kerfi.
Er þetta ekki sami Arnar og
skammaði mig fyrir að hafa opið DNS relay á DNS þjónum hjá mér fyrir nokkrum
mánuðum. Það var þörf ábending og við löguðum það í kjölfarið
:o)
Kveðja,
Ólafur