[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: LTSP og Opinn hugbúnaður og Linux ogalltþað



Hæ, hæ

2008/7/29 Olafur Gardarsson <oli ( at ) ikon ( dot ) is>:
> Styðji BIOS og netkortið ekki PXE eða etherboot skilst mér að oft sé hægt að
> bútta vélinni upp af floppy eða CD með litlu Linux kerfi sem búttar svo
> vélinni upp af netinu. Hef reyndar ekki prófað þetta sjálfur en það er í
> pípunum hjá okkur. Þetta er tilvalin leið ef maður er að sýna svo maður
> þurfi ekki að breyta BIOS stillingum, jafnvel þegar þær bjóða upp á PXE.

Ég rak um tíma einhvern bunka af disklausum vélum sem voru útstöðvar
fyrir X11 þjón (ekkert LTSP, bara uppsetning á X11, xfce og gdm á
debian, ásamt heimasmíðuðum image fyrir útstöðvarnar). Flest netkortin
studdu ekki PXE boot og ennfremur gátum við ekki sétt réttar
stillingar inní Microsoft DHCP þjóninn. Við settum því upp DHCP þjón á
linux sem hlustaði á non-standard porti, og útbjuggum svo floppy diska
sem voru varanlega í útstöðvunum. Þær bootuðu af þeim, hlóðu inn
netkortsrekli og ræstu svo af litlum ramdisk sem mountaði remote rót
yfir nfs. Þetta virkaði ágætlega, nema það þurfti að útbúa sér disk
fyrir hverja tegund af netkorti því það komst ekki nema einn rekill
ásamt ramdisk myndinni á floppy diskana. Við fundum hins vegar
eitthvert tól sem gerði þetta nánast sjálfkrafa, þ.e. maður valdi in
rekil gegnum vefviðmót og fékk þá custom-made floppy image. Smá vesen,
en virkaði fínt.

kv,
Arnar