[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]
Re: LTSP og Opinn hugbÃnaÃur og Linux ogalltÃaÃ
Title: Re: LTSP og Opinn hugbúnaður og Linux ogalltþað
Það hafði ekki hvarflað að mér ennþá að prófa að boota Makka upp af netinu. Vélbúnaðurinn frá þeim er að mörgu leiti sá lokaðasti hvað varðar svona upplýsingar. Reyndar hefurðu tvo aðra möguleika sem þú ættir kannski að kanna. Við höfum sett upp NXserver frá Nomachine á LTSP vélunum. Það er mjög hentugt fyrir fjartenginar og um hægvirk netsambönd og slíkt. NX tæknin þjappar samskiptunum ekki ósvipað og rdp en notar ssh port 22 við frumtengingu. Reyndar getur NX client talað rdp líka. Þú getur því gefið Makkanotendunum aðgang að LTSP þjóninum með þessum hætti. NX truflast ekkert af routerum og nöttun og svoleiðis. LTSP þolir hinsvegar illa allar tafir á leiðinni og líður best á 100Mb og yfir eins og þú hefur kannski séð.
Uppsetning á NX á ubuntu er hlægilega einföld. Þú nærð í 3 pakka hjá þeim og svo eru þetta 3 skipanir. Það eina sem þarf að passa er að gera þetta í réttri röð þ.e. að setja client inn fyrst, svo node og svo server. Leiðbeiningarnar á vefnum þeirra www.nomachine.com eru mjög skýrar varðandi Ubuntu.
NX server notar ekkert minni eða keyrsluafl fyrr en client tengist. Það fer því lítið fyrir þessu ef þetta er ekki í notkun.
Hinn möguleikinn er að nota VirtualBox frá Sun. VBox er Open Source og mjög sveigjanlegt kerfi (hægt að skrifta alskyns galdra inn í það). Þú skapar gott Linux image og reyndar Windows líka ef verða vill og getur reyndar boðið upp á margar gerðir af Linux, Windows og Unix kerfum. Kerfismyndirnar eru einfaldlega vistaðar miðlægt og afritaðar yfir á vélarnar eftir þörfum. Þægilegt þegar hreinsa þarf til, sérstaklega í Windows. Ef nægt minnisrými er á tölvunni má keyra allt að 3 stýrikerfi í einu.
Annað dæmi sem við erum að skoða er svokallað Thick Client LTSP. Örgjörfi útstöðvarinnar er þá notaður í þeim tilfellum sem hann er nægilega öflugur en kerfið sótt miðlægt eftir sem áður. Þetta nýtir sem sagt kosti miðlægs kerfis en sparar afkastagetu miðlægu vélarinnar. Þetta krefst hugsanlega Gigabit nettengingar.
Kveðja,
Ólafur
On 7/29/08 5:10 PM, "Anna Jonna Armannsdottir" <annaj ( at ) hi ( dot ) is> wrote:
On þri, 2008-07-29 at 16:10 +0000, Olafur Gardarsson wrote:
> Sæl Anna,
> Ég hef áhuga á að sýna áhugasömum skólastjórnendum og kerfisstjórum
> skólanna þessa tækni "life". Ég mundi þá ræða þá möguleika sem bjóðast
> að bæta þessari tækni við flóruna í skólunum. Ég tel þetta geta gefið
> mun fleiri nemendum aðgang að tölvutækni og víðari sýn á tölvuheiminn
> og möguleika þeirra til að nýta sér hann. Skólarinir geta einnig
> sparað ófáar milljónirnar með þessu en þeir geta einnig fjölgað til
> muna þeim sem hafa samtíma aðgang að tölvum. Mundi þessi nálgun
> réttlæta afnot af tölvustofu?
Góð spurning, sem við þurfum að skoða nánar.
> Að fá að sýna þeim þetta í Háskólanum mundi gefa þessu vægi sem fæst
> kannski ekki annarstaðar. Mig grunaði það að Háskólinn væri búinn að
> vera að prófa þetta í einhvern tíma enda nánast "no brainer" að bjóða
> nemendum og/eða kennurum aðgang að svona kerfi.
>
> Hvernig hefur LTSP gengið hjá ykkur annars? Það væri meiriháttar ef þú
> eða einhver hjá Háskólanum gæti talað um ykkar reynslu á svona fundi.
> Mörður væri kannski líka tilbúinn að ræða sína sýn og reynslu af því
> að reyna að kynna LTSP.
>
> Varðandi Drangsnes máttu alveg vísa þeim á okkur ef það hentar þeim.
> Við vinnum bara í tímavinnu við svona mál því við erum jú í
> harkinu :o) .
>
> Kveðja,
>
> Ólafur
Sæll Ólafur,
við höfum farið ósköp hljóðlega með þetta, en kannski tími til kominn
að koma út úr skápnum með þetta. :D
Háskólinn hefur verið að endurnýja nokkur tölvuver sín og tekið Makka
inn sem er alveg ágætt. Á þeim er einnig Windows stýrikerfi.
Ég þarf að finna út hvernig hægt er að láta þessar vélar boota á
netkortinu og þá er hitt leikur einn.
Þannig er hægt að bjóða upp á Makka, Windows og Ubuntu stýrikerfi á
einni og sömu vélinni. Þetta vonast ég til að finna út úr fljótlega.
Einnig eigum við í svolitlum vandræðum með swap, því við fáum ekki
sneið af disknum undir það. Aðstæður eru þannig að biðlarinn hefur
swap á þjóninum og það eru oft tveir eða þrír routerar á milli
sem veldur töluverðri seinkun á samskiptum þeirra. Ég er hrædd um
að þetta geti drepið clientinn.
Nú veit ég ekki hvernig gengur með LTSP stuðning í Fedoru, en það
væri ekkert mál, að setja fleiri mismunandi stýrikerfi upp á
þjóninn (Ubuntu), þannig að notendur gætu valið á milli.
ïKær kveðja, Anna Jonna Ármannsdóttir, %& A: Because people read
from top to bottom.
Unix Kerfisstjórn, Reiknistofnun HÍ %& Q: Why is top posting bad?