[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

RE: LTSP og Opinn hugbúnaður og Linux og allt það



Ég skil þig reyndar svo vel. Það eru ófá skiptin sem ég hef slitið hár mitt yfir óverjandi vandamálum með Windows netþjóna, Exchange þjóna og fleiri vörur sem viðskiptavinir hafa borgað stórfé fyrir. Þeir þurfa svo að borga annað eins eða meira til að fá til að virka. Sumt af þessu rugli er ekki hægt að útskýra eða réttlæta fyrir venjulegu fólki. Vista kom svo inn í þessa flóru ásamt Office 2007. Vista og Office 2007 voru fyrir vissa plástra sannkölluð "killer apps" þ.e. "time killers". Ég er sem sagt hættur að mæla með þessu dóti og bendi nú ferkar á Makkann og Linux. Hitt kaupa menn á eigin ábyrgð með áskrift að vírusum og öllu því. Hverju eru menn annars að mæla með í stað Exchange í Linux flórunni?

Ég er reyndar að nota Vista stýrikerfið eins og er en það er aðallega vegna Dreamweaver og slíkra kerfa. Ef ég hefði ekki kerfisþekkingu væri vélin löngu dauð hjá mér. Er að vinna í að skipta yfir í Linux sem aðal vinnustöð og setja Vista upp í sýndarumhverfi til að hafa aðgang að "legacy" windows dóti.

Ég leyfi mér þó ekki að tala svona nema fyrir upplýstum. Lærði það fyrir löngu síðan að þegar ég var fanatískur með Macintosh vs Windows hér á árum áður tók fólk mig einfaldlega ekki alvarlega. Maður verður að ræða þessa hluti af þokkalegri yfirvegun enda er heimurinn ekki svona svarthvítur eins og manni þætti þægilegast.

Microsoft sigraði markaðs orustuna við Apple og gerðu það með glæsibrag verður að viðurkennast. Apple skaut sig í fótinn með hroka að mínu mati og svo var gamla stýrikerfið ekki nógu stöðugt. Apple hafa þó náð ótrúlegum árangri undanfarið og alveg án minnar aðstoðar. Ég á núna eitt stykki Macbook Pro heima eftir næstum 10 ára Makkahlé. Hún er draumur í notkun. Ég slekk nánast aldrei á henni og ferðast með hana sofandi á milli landa (þ.e.a.s. tölvan sefur :o). Svo bara opna ég hana á hótelinu og hún er tilbúin á nokkrum sekúndum. Allir röntgen skannarnir og segulómun og hvað þessi sprengjuleitartæki öll gera, virðast ekki hafa nokkur áhrif á þessa tölvu. Svona eru töfrar Unix.

Kveðja,
 
Ólafur





-----Original Message-----
From: mordur [mailto:mordur ( at ) mordur ( dot ) com]
Sent: 29. júlí 2008 15:59
Cc: rglug ( at ) rglug ( dot ) org
Subject: Re: LTSP og Opinn hugbúnaður og Linux og allt það

Sælar :D

Já, sennilega hljóma ég sem bitur og Microsoft-hatandi harðlínumaður.
Enda er ég það líka :D, en sennilega er það nú rétt hjá þér Ólafur, að það sé betra að fara með friði en stríði. Vitanlega er verið að hvetja (tækni)menn til að feta slóðir sem þeir ekki hafa áður þrammað og því fylgir eðlilega óöryggi. Mjög sniðugt hjá ykkur að búa til business úr því að mennta tæknimenn og kerfisstjóra í notkun LTSP o.s.frv.  Varðandi
Nýherja: Ég hef ekkert á móti því fyrirtæki, nema síður sé, skipti mikið við það og  líkar stórvel. Ég held að það sé mjög gott að hafa slík fyrirtæki með í svona þróun og alveg nauðsynlegt.

Kv.,

Mörður

Olafur Gardarsson wrote:
> Þetta er mjög athyglisverð saga Mörður og mikilvæg reynsla að geta vitnað í.
> Ég var búinn að vita af LTSP nokkuð lengi en áttaði mig á í fyrra að
> það það væri komið mjög langt í þróun. Við höfum staðfest það með því
> að setja upp nokkrar svona vélar og prófa allskyns hugbúnað og
> útfærslur á þessu. Ég er að "tísa" kerfisstjórana hjá skólunum með
> bréfi sem ég sendi þeim einum af öðrum eftir því sem ég finn hjá þeim
> netföngin. Ég held nefnilega að ef maður kemur hugmyndinni inn hjá
> þeim fyrst geta þeir sagst þekkja málefnið þegar það kemur frá öðrum
> og verða kannski sumir ekki eins þverir eins og við kerfisstjórarnir eigum vanda til að vera.
>
> Ég er að reyna að búa til business úr þessu fyrir okkur þ.e. Við
> kennslu uppsetningu og viðhald. Við höfum þó engan vegin mannafla í
> það að sinna fjöldanum ef þetta kemst verulega af stað. Þess vegna er
> ég að bjóða upp á 3ja daga LTSP vinnubúðir (verklegt workshop) fyrir
> tæknimenn/kerfisstjóra svo þeir geti sinnt því helsta sjálfir. Við
> viljum síður vera í ofaní skotgröfunum að sinna hverju einsasta
> smáatriði sem kemur upp. Best að kenna mönnum að bjarga sér sjálfir
> með það helsta. Kerfisstjórarnir þurfa oft að sýna fram á að þeir hafi
> utanaðkomandi stuðning ef eitthvað kemur upp á, þegar þeir velja
> vélbúnað eða hugbúnað sem treysta skal á í daglegum rekstri skóla, stofnana og fyrirtækja.
>
> Svo hef ég lagt áherslu á að það sé hægt að setja þetta upp á LAN án
> þess að vera með aðgreint net (nokkrar auka færslur á DHCP þjóninum).
> Þá geta menn verið að prófa sig áfram með þetta án þess að vera með
> kollsteypur í uppsetningum á netkerfinu. Legg líka áherslu á að þetta
> geti unnið með Active Directory en það er mjög ráðandi á netkerfum
> hérlendis og þó víðar væri leitað. Þannig fá menn strax tilbúin
> authentication og aðgang að heimasvæðum. Mikilvægt er að kenna mönnum
> á ýmis tól eins og DD og slíkt svo þeir kunni að bjarga sér ef harðir
> diskar deyja og slíkar uppákomur. Held það sé helst óvissa varðandi slíka hluti sem skelfir Windows dátana.
>
> Stríðsyfirlýsingar gegn Windows eru ekki það gáfulegasta sem maður
> gerir í þessum málum. Ég kýs að vinna með því sem er til fyrir og menn þekkja vel.
> Bjóða upp á aðgang að Windows í gegn um LTSP ofl.
>
> Fyrirtæki eins og Nýherji munu kannski seint taka verulega áhættu á
> þessu sviði en þeir hafa þó verið nokkuð djarfir að styðja við
> sprotafyrirtæki af ýmsu tagi. Ég hef verið í sambandi við þá og
> hugsanlega held ég einhverja tölu þar um þetta. Það kemur í ljós á
> næstunni þegar menn fara að tínast úr sumarfríum. Það er mikilvægt að
> hafa breiðan stuðning við þessa þróun ef hún á að komast af stað í
> skólunum og það fæst seint ef maður talar aldei um þetta við nokkurn mann.
>
> Kveðja,
>
> Ólafur
>
>