[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]
Re: LTSP og Opinn hugbúnaður og Linux og alltþað
Djöfull líst mér vel á ykkur.
Þess má kannski geta að Rafmagns og Tölvuverkfræði-deild (heitir víst
deild núna - samt undir 50 nemendur, jæja) rekur tölvuver á jarðhæð
VR2 sem notast við Debian server og Ubuntu clienta (20 stykki). Svo
sem ekkert LTSP þar á ferð en sameiginlegur notendagrunnur (með ldap)
og miðlæg heimasvæði (með nfs). Þetta hefur og gengur enn nokkuð
vandræðalaust, þrátt fyrir einhver tímabil af fólki af uppgvöta "fork
bomb" og óendanlegar while lykkjur. En það getur varla verið neitt
stórmál að koma þessu upp í skólunum, allavega ekki tæknilega séð. :)
Gangi ykkur svo vel!
- Kári
2008/7/29 Olafur Gardarsson <oli ( at ) ikon ( dot ) is>:
> Sæl Anna,
> Ég hef áhuga á að sýna áhugasömum skólastjórnendum og kerfisstjórum skólanna
> þessa tækni "life". Ég mundi þá ræða þá möguleika sem bjóðast að bæta
> þessari tækni við flóruna í skólunum. Ég tel þetta geta gefið mun fleiri
> nemendum aðgang að tölvutækni og víðari sýn á tölvuheiminn og möguleika
> þeirra til að nýta sér hann. Skólarinir geta einnig sparað ófáar
> milljónirnar með þessu en þeir geta einnig fjölgað til muna þeim sem hafa
> samtíma aðgang að tölvum. Mundi þessi nálgun réttlæta afnot af tölvustofu?
>
> Að fá að sýna þeim þetta í Háskólanum mundi gefa þessu vægi sem fæst kannski
> ekki annarstaðar. Mig grunaði það að Háskólinn væri búinn að vera að prófa
> þetta í einhvern tíma enda nánast "no brainer" að bjóða nemendum og/eða
> kennurum aðgang að svona kerfi.
>
> Hvernig hefur LTSP gengið hjá ykkur annars? Það væri meiriháttar ef þú eða
> einhver hjá Háskólanum gæti talað um ykkar reynslu á svona fundi. Mörður
> væri kannski líka tilbúinn að ræða sína sýn og reynslu af því að reyna að
> kynna LTSP.
>
> Varðandi Drangsnes máttu alveg vísa þeim á okkur ef það hentar þeim. Við
> vinnum bara í tímavinnu við svona mál því við erum jú í harkinu :o) .
>
> Kveðja,
>
> Ólafur
> www.ikon.is