Sæl Anna,
Ég hef áhuga á að sýna áhugasömum
skólastjórnendum og kerfisstjórum skólanna þessa tækni "life". Ég mundi þá ræða
þá möguleika sem bjóðast að bæta þessari tækni við flóruna í skólunum. Ég tel
þetta geta gefið mun fleiri nemendum aðgang að tölvutækni og víðari sýn á
tölvuheiminn og möguleika þeirra til að nýta sér hann. Skólarinir geta einnig
sparað ófáar milljónirnar með þessu en þeir geta einnig fjölgað til muna þeim
sem hafa samtíma aðgang að tölvum. Mundi þessi nálgun réttlæta afnot af
tölvustofu?
Að fá að sýna þeim þetta í Háskólanum mundi gefa þessu vægi
sem fæst kannski ekki annarstaðar. Mig grunaði það að Háskólinn væri búinn að
vera að prófa þetta í einhvern tíma enda nánast "no brainer" að bjóða nemendum
og/eða kennurum aðgang að svona kerfi.
Hvernig hefur LTSP gengið hjá
ykkur annars? Það væri meiriháttar ef þú eða einhver hjá Háskólanum gæti talað
um ykkar reynslu á svona fundi. Mörður væri kannski líka tilbúinn að ræða sína
sýn og reynslu af því að reyna að kynna LTSP.
Varðandi Drangsnes máttu
alveg vísa þeim á okkur ef það hentar þeim. Við vinnum bara í tímavinnu við
svona mál því við erum jú í harkinu :o)
.
Kveðja,
Ólafur
www.ikon.is