[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: LTSP og Opinn hugbúnaður og Linux og allt það



Sælar :D

Já, sennilega hljóma ég sem bitur og Microsoft-hatandi harðlínumaður. Enda er ég það líka :D, en sennilega er það nú rétt hjá þér Ólafur, að það sé betra að fara með friði en stríði. Vitanlega er verið að hvetja (tækni)menn til að feta slóðir sem þeir ekki hafa áður þrammað og því fylgir eðlilega óöryggi. Mjög sniðugt hjá ykkur að búa til business úr því að mennta tæknimenn og kerfisstjóra í notkun LTSP o.s.frv. Varðandi Nýherja: Ég hef ekkert á móti því fyrirtæki, nema síður sé, skipti mikið við það og líkar stórvel. Ég held að það sé mjög gott að hafa slík fyrirtæki með í svona þróun og alveg nauðsynlegt.

Kv.,

Mörður

Olafur Gardarsson wrote:
Þetta er mjög athyglisverð saga Mörður og mikilvæg reynsla að geta vitnað í.
Ég var búinn að vita af LTSP nokkuð lengi en áttaði mig á í fyrra að það það
væri komið mjög langt í þróun. Við höfum staðfest það með því að setja upp
nokkrar svona vélar og prófa allskyns hugbúnað og útfærslur á þessu. Ég er
að "tísa" kerfisstjórana hjá skólunum með bréfi sem ég sendi þeim einum af
öðrum eftir því sem ég finn hjá þeim netföngin. Ég held nefnilega að ef
maður kemur hugmyndinni inn hjá þeim fyrst geta þeir sagst þekkja málefnið
þegar það kemur frá öðrum og verða kannski sumir ekki eins þverir eins og
við kerfisstjórarnir eigum vanda til að vera.

Ég er að reyna að búa til business úr þessu fyrir okkur þ.e. Við kennslu
uppsetningu og viðhald. Við höfum þó engan vegin mannafla í það að sinna
fjöldanum ef þetta kemst verulega af stað. Þess vegna er ég að bjóða upp á
3ja daga LTSP vinnubúðir (verklegt workshop) fyrir tæknimenn/kerfisstjóra
svo þeir geti sinnt því helsta sjálfir. Við viljum síður vera í ofaní
skotgröfunum að sinna hverju einsasta smáatriði sem kemur upp. Best að kenna
mönnum að bjarga sér sjálfir með það helsta. Kerfisstjórarnir þurfa oft að
sýna fram á að þeir hafi utanaðkomandi stuðning ef eitthvað kemur upp á,
þegar þeir velja vélbúnað eða hugbúnað sem treysta skal á í daglegum rekstri
skóla, stofnana og fyrirtækja.


Svo hef ég lagt áherslu á að það sé hægt að setja þetta upp á LAN án þess að
vera með aðgreint net (nokkrar auka færslur á DHCP þjóninum). Þá geta menn
verið að prófa sig áfram með þetta án þess að vera með kollsteypur í
uppsetningum á netkerfinu. Legg líka áherslu á að þetta geti unnið með
Active Directory en það er mjög ráðandi á netkerfum hérlendis og þó víðar
væri leitað. Þannig fá menn strax tilbúin authentication og aðgang að
heimasvæðum. Mikilvægt er að kenna mönnum á ýmis tól eins og DD og slíkt svo
þeir kunni að bjarga sér ef harðir diskar deyja og slíkar uppákomur. Held
það sé helst óvissa varðandi slíka hluti sem skelfir Windows dátana.


Stríðsyfirlýsingar gegn Windows eru ekki það gáfulegasta sem maður gerir í
þessum málum. Ég kýs að vinna með því sem er til fyrir og menn þekkja vel.
Bjóða upp á aðgang að Windows í gegn um LTSP ofl.

Fyrirtæki eins og Nýherji munu kannski seint taka verulega áhættu á þessu
sviði en þeir hafa þó verið nokkuð djarfir að styðja við sprotafyrirtæki af
ýmsu tagi. Ég hef verið í sambandi við þá og hugsanlega held ég einhverja
tölu þar um þetta. Það kemur í ljós á næstunni þegar menn fara að tínast úr
sumarfríum. Það er mikilvægt að hafa breiðan stuðning við þessa þróun ef hún
á að komast af stað í skólunum og það fæst seint ef maður talar aldei um
þetta við nokkurn mann.


Kveðja,

Ólafur