[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: LTSP og Opinn hugbúnaður og Linux og allt það



Sælir,

Jú, við vorum að vesenast heilmikið með skólalinux og LTSP þarna árið 2005. Ég fór og talaði við mann og annan, bæði í stjórnsýslu ríkis og borgar og við þá sem um upplýsingatækni véla hjá Reykjavíkurborg. Við útveguðum 50 tölvur til að nota sem útstöðvar gefins hjá Landspítalanum, vorum tilbúnir til að gefa alla vinnu við uppsetningu og kennslu á kerfin og vorum komnir vel á veg með að útvega fjármagn til að kaupa einn öflugan þjón til að keyra allt galleríið.

Bæði pólitíkusar og embættismenn hjá ríki og borg voru jákvæðir í orði og við eignuðumst hauk í horni þar sem var kerfisstjóri Austurbæjarskóla sem var mikill áhugamaður um Linux og frjálsan hugbúnað. Við vorum tilbúnir til stórræða og höfðum allt til alls, bæði þekkingu, vilja, eldmóð og meðbyr, að því er virtist.

Í stuttu máli var niðurstaðan sú, að þótt við byðum allt þetta fram var það afþakkað og allt slegið af þegar Tölvudeild Menntasviðs Reykjavíkur, sem þá hét, ákvað að þetta hentaði þeim ekki. Mig grunar að yfirmanni þeirrar deildar hafi þótt svona framtak rugga fína Microsoft bátnum hans full mikið.

Það voru sem sagt þeir sem hafa hagsmuni af óbreyttu ástandi, þ.e.a.s. þeir sem hafa keypt, lagt blessun sína yfir, sett upp og haldið við þeim kerfum sem fyrir hendi eru sem slógu þetta af. Ekki eru þeir að græða neitt á því að það komi skyndilega einhverjir do-gooders og þykist ætla segja þeim eitthvað til. Þeir geta hugsanlega haft það sjónarmið að það varpi rýrð á störf þeirra ef í ljós kemur að stóran hluta kerfanna þeirra er hægt að reka á hagkvæmari hátt en áður var, án leyfisgjalda og Microsoft skatta. Það væri sennilega í lagi ef hugmyndin um slíka hagræðingu kæmi frá Nýherja eða ParX, því Nýherji myndi kalla þetta einhverju flottu nafni, dubba þetta upp sem nýjasta nýtt í tölvutækni. Það er mikið fínna að fá leiðbeiningar og hjálp frá Nýherja en frá einhverju rglug-hyski utan úr bæ. Síðan býður Nýherji líka upp á bjór á föstudögum. Kannski RGLUG og FSFI ættu að fara að bjóða upp á meiri bjór?

Þetta, þ.e.a.s. andstaða yfirmanna tæknimála, virtist mér vera erfiðasta vandamálið árið 2005, en síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar. Umræða um frjálsan hugbúnað hefur aukist og færst nær yfirborðinu, sbr. forsíðu sunnudagsmoggans hér á dögunum. Ég held að það sé rétt hjá þér, Ólafur, að krítískur massi hafi náðst eða sé að nást plús Vista katastrófan. Auk þess held ég að pólitísk meðvitundarástand kjörinna fulltrúa okkar fari dagbatnandi varðandi þessi mál, og því sé alltaf að verða auðveldara að setja pólitískan þrýsting á þá sem stjórna upplýsingatæknimálum um að skoða frjálsan hugbúnað.

Ég held enn að LTSP sé kjörið próject til að færa frjálsan hugbúnað inn í menntakerfið og fyrirtækin. Ég held að með samstilltu áhugamanna um frjálsan hugbúnað, stjórnmálamanna og meðvitaðs fjölmiðlafólks verðum við ekki hunsaðir öllu lengur. Ég býð því fram mína eigin starfskrafta og þekkingu og fyrirtækis míns, 1984 ehf, til að vinna máli þessu brautargengi og til að vinna verkefni því tengd.

Með kveðju,

Mörður Ingólfsson


Ólafur Garðasson wrote:
Sendi þetta aftir því fyrir sending wrappaðist eitthvað asnalega.

Sælir,
Ég rakst á umræður ykkar ofl. á netinu um skolelinux þ.e. LTSP frá því 2005 og mér datt í hug að hafa samband og heyra í ykkur hljóðið. Þannig er mál með vexti að ég rek fyrirtækið Íkon ehf og hef í mörg ár verið að nýta Linux til ýmissa verkefna svo sem eins og eldveggi ofl. Rek einnig vefþjóna og póstþjóna og slíkt á Linux. Hef einnig lengi verið að þjónusta Windows netkerfi og þekki þau kerfi inn og út. Við höfum á þessu ári snúið okkur nánast alfarið að Linux og erum orðnir hálfgerðir trúboðar í þessu en skoða má hluta af mínum pælingum hér á vefsíðu
fyrirtækisins www.ikon.is.
Ég var á ferð í Marokkó í júní síðastliðnum og hélt þar smá tölu fyrir nokkrum "áhugasömum tölvumönnum" (lesist tölvunördar) um það sem við værum að gera hjá Íkon. Þegar talið barst að disklausum útstöðvum varð eins og "sprenging" í fundarsalnum og þeir vöknuðu til lífsins þrátt fyrir hitamókið í Casablanca á þessum tíma. Allir vildu vita meira um þetta og ákveðið var að ég héldi annan fyrirlestur nokkrum dögum seinna sem ég og gerði. Þetta vakti mig til umhugsunar um hvernig er best að kynna þessa tækni og hef ég því verið að senda út bréf á tölvumenn út um allar trissur til að hækka vitundarstigið gagnvart LTSP. Ég hef verið kallaður til að halda tölu um þetta á ráðstefnu í Hollandi í október eftir að ég minntist á þetta á mailinglista sem ég er á. Það er einhver undiralda í gangi þessa dagana og Linux er í mikilli sókn. Ég hef notað og fylgst með Linux frá því ég kynntist því í Bandaríkjunum 1997 og aldrei séð svona mikinn áhuga og umræður áður. Ég held að útbreiðslan hafi náð krítískum massa og Vista stýrikerfi Microsoft var eins og bensín á Linux glóðirnar. Ég þarf að komast í betra samband við aðra Linux atvinnumenn wanabees. Við erum að gera þetta að okkar aðal atvinnu og það verður nóg af verkefnum fyrir alla. Ég stefni á að sannfæra einhverja skóla til að prófa LTSP og við erum að bjóðast til að setja ókeypis upp fyrsta LTSP kerfisþjóninn. Við settum nýverið upp netkaffi með LTSP hjá farfuglunum í Laugardalnum og það gengur mjög vel. Ég held að það sé fyrsta Linux netkaffið á íslandi en þið kannski látið mig vita ef þið getið staðfest það eða afsannað. Verið endilega í sambandi við mig, því ég vil bæði vera þátttakandi í umræðunni og hafa aðgang að mönnum sem hugsanlega hafa áhuga á að taka að sér verkefni á þessu sviði fyrir skóla og fyrirtæki. Akkúrat núna vantar mig fundarsal með tölvum til að demonstrera LTSP. Vil hafa eitthvað klárt til að sýna fólki. Einhverjar hugmyndir?
Bestu kveðjur,
Ólafur Garðarsson


ÍKON EHF og EDAL.NET - Vefhýsing
Nýbýlavegur 6, 200 Kópavogur
Iceland www.ikon.is | www.edal.net Sími / Phone (+354) 555-1693