[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

LTSP og Opinn hugbúnaður og Linux og allt það



Sælir,
Ég rakst á umræður ykkar ofl. á netinu um skolelinux þ.e. LTSP frá því 2005 og mér datt í hug að hafa samband og heyra í ykkur hljóðið. Þannig er mál með vexti að ég rek fyrirtækið Íkon ehf og hef í mörg ár verið að nýta Linux til ýmissa verkefna svo sem eins og eldveggi ofl. Rek einnig vefþjóna og póstþjóna og slíkt á Linux. Hef einnig lengi verið að þjónusta Windows netkerfi og þekki þau kerfi inn og út. Við höfum á þessu ári snúið okkur nánast alfarið að Linux og erum orðnir hálfgerðir trúboðar í þessu en skoða má hluta af mínum pælingum hér á vefsíðu fyrirtækisins www.ikon.is.
 
Ég var á ferð í Marokkó í júní síðastliðnum og hélt þar smá tölu fyrir nokkrum "áhugasömum tölvumönnum" (lesist tölvunördar) um það sem við værum að gera hjá Íkon. Þegar talið barst að disklausum útstöðvum varð eins og "sprenging" í fundarsalnum og þeir vöknuðu til lífsins þrátt fyrir hitamókið í Casablanca á þessum tíma. Allir vildu vita meira um þetta og ákveðið var að ég héldi annan fyrirlestur nokkrum dögum seinna sem ég og gerði. Þetta vakti mig til umhugsunar um hvernig er best að kynna þessa tækni og hef ég því verið að senda út bréf á tölvumenn út um allar trissur til að hækka vitundarstigið gagnvart LTSP. Ég hef verið kallaður til að halda tölu um þetta á ráðstefnu í Hollandi í október eftir að ég minntist á þetta á mailinglista sem ég er á. 
 
Það er einhver undiralda í gangi þessa dagana og Linux er í mikilli sókn. Ég hef notað og fylgst með Linux frá því ég kynntist því í Bandaríkjunum 1997 og aldrei séð svona mikinn áhuga og umræður áður. Ég held að útbreiðslan hafi náð krítískum massa og Vista stýrikerfi Microsoft var eins og bensín á Linux glóðirnar. 
 
Ég þarf að komast í betra samband við aðra Linux atvinnumenn wanabees. Við erum að gera þetta að okkar aðal atvinnu og það verður nóg af verkefnum fyrir alla. Ég stefni á að sannfæra einhverja skóla til að prófa LTSP og við erum að bjóðast til að setja ókeypis upp fyrsta LTSP kerfisþjóninn. Við settum nýverið upp netkaffi með LTSP hjá farfuglunum í Laugardalnum og það gengur mjög vel. Ég held að það sé fyrsta Linux netkaffið á íslandi en þið kannski látið mig vita ef þið getið staðfest það eða afsannað. Verið endilega í sambandi við mig, því ég vil bæði vera þátttakandi í umræðunni og hafa aðgang að mönnum sem hugsanlega hafa áhuga á að taka að sér verkefni á þessu sviði fyrir skóla og fyrirtæki. 
 
Akkúrat núna vantar mig fundarsal með tölvum til að demonstrera LTSP. Vil hafa eitthvað klárt til að sýna fólki. Einhverjar hugmyndir?
 
Bestu kveðjur,
 
Ólafur Garðarsson

ÍKON EHF og EDAL.NET - Vefhýsing
Nýbýlavegur 6, 200 Kópavogur
Iceland www.ikon.is  | www.edal.net 
Sími / Phone (+354) 555-1693