[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]
Ráðstefna um stafrænt frelsi - Kvöldverður með fyrirlesurum
-----BEGIN PGP SIGNED MESSAGE-----
Hash: SHA1
(Athugið, einhverjir aðilar fá þennan póst tvisvar vegna þess að þeir
eru skráðir á bæði FSFÍ og RGLUG póstlistann).
Góðan daginn,
Nú eru aðeins örfáir dagar í ráðstefnu um stafrænt frelsi. Félag um
stafrænt frelsi á Íslandi, FSFÍ, hefur ákveðið að bjóða frelsishetjum
FSFÍ út að borða með fyrirlesurunum að lokinni ráðstefnunni á
laugardaginn til þess að þakka rausnarlegan stuðning við félagið. Í boði
verður þriggja rétta máltíð (drykkir ekki innifaldir) á fínu
veitingahúsi í Reykjavík. Þetta er frábært tækifæri til þess að spjalla
við Barlow, Moglen og aðra um stafrænt frelsi og málefni tengd þeim í
þægilegu og rólegu umhverfi.
Frelsishetjur teljast þeir sem hafa styrkt FSFÍ með að minnsta kosti 15
þúsund króna styrk. Það er einnig hægt að gerast Stuðningsmaður frelsis
með styrk upp að 5000 krónum og Baráttumaður frelsis með styrk á bilinu
5000 og 15000 krónur.
Til þess að vera sanngjarnir höfum við ákveðið að gefa áhugasömum
tækifæri til þess að gerast frelsihetjur með því að leggja inn styrk á
reikning FSFÍ á næstu tveimur dögum. Á miðvikudagskvöldið verður gengið
frá borðapöntunum þannig að þær frelsishetjur sem vilja koma með verða
því að hafa gengið frá styrkgreiðslum fyrir þann tíma.
Reikningsnúmer FSFÍ er 526-26-3638 og
kennitala félagsins er 470308-1170.
Auk þess verður hverjum og einum styrktaraðila stafræns frelsis á
Íslandi þakkað sérstaklega fyrir á ráðstefnunni.
Hlökkum til að sjá ykkur á ráðstefnunni.
Fyrir hönd FSFÍ,
Tryggvi Björgvinsson
-----BEGIN PGP SIGNATURE-----
Version: GnuPG v1.4.6 (GNU/Linux)
Comment: Using GnuPG with Mozilla - http://enigmail.mozdev.org
iD8DBQFIaNpkTfUwC3N5Fj0RAqH5AKDHPXXWGoSga8gJHvKwGrcwnM+kfACfe+2a
DYmrsnBXD9REKxsBmgDCkqo=
=B5aH
-----END PGP SIGNATURE-----