[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]
Re: (OT) Firefox 3 og download met
2008/6/19 G Ragnar Gudmundsson <ragnar ( at ) this ( dot ) is>:
> Þó væri gaman að fá áætlaðan fjölda frá þeim sem nota pakkastjóra.
> Ef fjöldinn er verulegur væri hægt að vinna að því að vera talin
> með næst.
Já og nei. Margir voru t.d. mjög ósáttir við að Microsoft hreykti sér
af miklum fjölda þeirra sem sóttu IE7 af því að mikill hluti af þeim
fjölda fékk hann bara sendan gegnum Windows Update án þess að bera sig
sérstaklega eftir því. Uppfærslur í pakkastjóra lúta oft sömu
lögmálum, þetta kemur einfaldlega sem update. Ég er ekki alveg viss um
að slíkt eigi að teljast með, annars getur MS gefið út eitt update og
slegið þetta met á morgun.
kv,
Arnar