[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: rglug: Re: rglug: Re: rglug: Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]





Gudjon I. Gudjonsson:
>  Gcc þýðandinn og Gdb aflúsunartólið virka fyrir ARM tölvur
en
> Gdb ónothæft nema fyrir eitthvert dútl
> Ég gæti eytt fimm mannárum í að skrifa þennan hugbúnað
> og gefa hann síðan samfélaginu en ég geri það
> ekki og enginn annar virðist gera það heldur.

Einhvern veginn finnst mér raunhæft að hugsa sér að
fyrirtækið sem hannar "kubbinn" gæti hjálpað til með þetta.
Þú gætir kannske boðið þeim að taka þetta að þér til að
hægt væri að selja ennþá meira af þessum ágæta búnaði.

Bjarni:
>"hvað gerist ef við bönnum lokaðan hugbúnað?"

Gudjon:
>  Ég vil meina að það sem virkar illa í OSS í dag muni halda
> áfram að virka illa þó að þessi ... hugmynd þín um að banna
> lokaðan hugbúnað verði að veruleika.

Hugsanlega en þó ekki alveg eins illa og í dag.
Hinsvegar er líklegt að eitthvað fari að virka mun betur en
nokkru sinni fyrr og kostirnir væru veigameiri en gallarnir.

Mín spurning er:
Hverjum á allt þetta brölt að þjóna og hvernig er það best gert?

Mér sýnist að með betri samnýtingu á cóða / lausnum
væri hægt að auka afköst og gæði. Segjum að hægt
væri að draga úr vinnu / kostnaði við hugbúnaðargerð
um 90%. Yðri það til þess að fækka störfum eða auka
framboð á góðum hugbúnaði eða bæði?

Til að byrja með yrði eflaust mikil uppsveifla í framboði á
ýmiskonar lausnum en þegar við kæmumst nær því að
skrifa öll forrit sem hægt er að vilja, gæti orðið samdráttur
í atvinnugreininni. Þó er (sennilega) verulega margt ógert
á þessu sviði.

Hvað varðar fyrirtæki og fólk sem gæti viljað vinna við
þetta í framtíðinni. Hverjum er ekki sama? Fjármagninu
er allavegana sama, það finnur sér bara einhverja aðra
arðbæra starfsemi til að velkjast í. Og sú tilhugsun að
börn mín eða barnabörn fái ekki vinnu við að aflúsa
hugbúnað... ég treysti þeim alveg til að finna sér eitthvað
áhugavert að gera.

Gudjon:
> Lokaður hugbúnaður mun aldrei verða bannaður

Það er nú alltaf verið að banna hitt og þetta, eða drepa
með reglugerðar fargani. Svo er líka verið að stjórna
helling. Allt frá að allir grunnskólar þurfi að skila sömu
afurðinni til stöðlunar á framleiðslu í landbúnaði.

Mér sýnist að margt sem verið er að gera í lagaumhverfinu
sé fyrirtækjum í hag. Sú staða gætið komið upp að nógu
mörg og stór fyrirtæki hefðu hag af því að oppna hugbúnaðinn
til að löggjafinn færi að hlusta. Þetta kæmi þá væntanlega
í framhaldi af því að opinn hugbúnaður vaxi áfram og dafni.
Ef verulegur fjöld notenda færir sig þá getur myndast skriða.
Fyrirtæki sem framleiða lokaðan hugbúnað gætu lent í
mótlætis-tíð og fjármagnsflótta. Þá gætu fleiri fyrirtæki skipt
um skoðun og snúist á sveif með oppnum hugbúnaði og
spilaborgin hrunið innanfrá. Er þetta kannse að gerast
nú þegar?

Gudjon:
> "Bjarni"
> virðist útiloka möguleikann á því að OSS sé fín hugmynd
> en vonlaust sem bissness módel.

OSS þarf ekki að skilgreina sem bissness módel
heldur sem ástand eða umhverfi.
Ef hugbúnaðar-bransinn fer með einum eða öðrum
hætti yfir í FOSS er ég vissum að fjöldi aðila finni frumleg
og uppbyggileg bissness módel til að starfa og hagnast.

Guðmundur Ragnar