[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: rglug: Re: rglug: Re: rglug: Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]



Hæ Bjarni

On Wednesday 04 June 2008 20:02:03 Bjarni R. Einarsson wrote:
> On 2008-06-04, 19:38:13 (+0200), Gudjon I. Gudjonsson wrote:
> > Ég er með mörg konkret móttdæmi en læt tvö duga.
> > 1. Gcc þýðandinn og Gdb aflúsunartólið virka fyrir ARM tölvur og JTAG
> > úttak. Hins vegar get ég ekki skrifað beint í flash minnið með Gdb. Það
> > gerir Gdb ónothæft nema fyrir eitthvert dútl. Ég gæti eytt fimm mannárum
> > í að skrifa þennan hugbúnað og gefa hann síðan samfélaginu en ég geri það
> > ekki og enginn annar virðist gera það heldur. Það er mun ódýrara fyrir
> > mig að borga milljónina sem commercial tól kostar.
> >
> > Ég væri mun sáttari ef ég gæti notað Gdb og keypt það sem vantar upp á.
> > Það myndi gangast samfélaginu og OSS.
>
> Þetta er reyndar langt frá því að vera mótdæmi:  Þú sjálfur ert til í
> að borga milljón, og ert varla einn.  Ergó, það er markaður fyrir þessum
> hugbúnaði og kaupandanum (þér) er mikið til sama um hugbúnaðarleyfið sem
> gildir um afurðina, þú vilt bara fá lausn á vandamálinu.
>
> Þú hefur misskilið spurninguna. :-)
Í prinsippinu já, í praktík já og nei.
>
> Hún var: "hvað gerist ef við bönnum lokaðan hugbúnað?", og ég bað um
> dæmi um flokka hugbúnaðar sem myndu hætta að verða til ef möguleikinn
> á einokun og endurtekinni gjaldtöku væri tekinn af fjárfestum,
> forriturum og atvinnurekendum.
>
> Það er allt öðruvísi spurning heldur en þú ert að svara.  Þú ert að
> svara spurningunni "hvað virkar illa í OSS heiminum í dag?", og það
> er hárrétt hjá þér að dæmin eru fleiri en tvö. :-P
Ég vil meina að það sem virkar illa í OSS í dag muni halda áfram að virka illa 
þó að þessi (leyfist mér að kalla hugmyndina fáránlega?) hugmynd þín um að 
banna lokaðan hugbúnað verði að veruleika.
    Lokaður hugbúnaður mun aldrei verða bannaður og besta leiðin er að laga 
gallana í stað þess að bölva M$ hærra við hvern ósigur okkar.
>
> Í dag telja margir forritarar að þeir geti ekki grætt pening, nema að
> vinna við lokaðan kóða.  Ergó, þeir sem vilja lifa af vinnu sinni fara
> flestir í commercial hugbúnaðargerð og opnu kerfin líða skort.  Það
> væri gaman að breyta því, og hluti af því er bara viðhorfsbreyting, að
> nördar átti sig á því að til séu önnur fýsileg bissnessmódel heldur en
> þau sem byggja á lokuðum kóða og einokun.
Þú virðist útiloka möguleikann á því að OSS sé fín hugmynd en vonlaust sem 
bissness módel. 
Richard Feynman skrifaði áhugaverða grein í "The meaning of it all" um það að 
maður eigi að efast um bissnessmódelið sitt, get ekki haft það eftir.

Kveðja
Gaui