[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]
Re: rglug: Re: rglug: Re: rglug: Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]
On 2008-06-04, 19:38:13 (+0200), Gudjon I. Gudjonsson wrote:
> Ég er með mörg konkret móttdæmi en læt tvö duga.
> 1. Gcc þýðandinn og Gdb aflúsunartólið virka fyrir ARM tölvur og JTAG úttak.
> Hins vegar get ég ekki skrifað beint í flash minnið með Gdb. Það gerir Gdb
> ónothæft nema fyrir eitthvert dútl. Ég gæti eytt fimm mannárum í að skrifa
> þennan hugbúnað og gefa hann síðan samfélaginu en ég geri það ekki og enginn
> annar virðist gera það heldur. Það er mun ódýrara fyrir mig að borga
> milljónina sem commercial tól kostar.
>
> Ég væri mun sáttari ef ég gæti notað Gdb og keypt það sem vantar upp á. Það
> myndi gangast samfélaginu og OSS.
Þetta er reyndar langt frá því að vera mótdæmi: Þú sjálfur ert til í
að borga milljón, og ert varla einn. Ergó, það er markaður fyrir þessum
hugbúnaði og kaupandanum (þér) er mikið til sama um hugbúnaðarleyfið sem
gildir um afurðina, þú vilt bara fá lausn á vandamálinu.
Þú hefur misskilið spurninguna. :-)
Hún var: "hvað gerist ef við bönnum lokaðan hugbúnað?", og ég bað um
dæmi um flokka hugbúnaðar sem myndu hætta að verða til ef möguleikinn
á einokun og endurtekinni gjaldtöku væri tekinn af fjárfestum,
forriturum og atvinnurekendum.
Það er allt öðruvísi spurning heldur en þú ert að svara. Þú ert að
svara spurningunni "hvað virkar illa í OSS heiminum í dag?", og það
er hárrétt hjá þér að dæmin eru fleiri en tvö. :-P
Í dag telja margir forritarar að þeir geti ekki grætt pening, nema að
vinna við lokaðan kóða. Ergó, þeir sem vilja lifa af vinnu sinni fara
flestir í commercial hugbúnaðargerð og opnu kerfin líða skort. Það
væri gaman að breyta því, og hluti af því er bara viðhorfsbreyting, að
nördar átti sig á því að til séu önnur fýsileg bissnessmódel heldur en
þau sem byggja á lokuðum kóða og einokun.
--
Bjarni Rúnar Einarsson
bre ( at ) klaki ( dot ) net
http://bre.klaki.net/
Use http://bre.klaki.net/bre/contact.shtml to bypass my spam filters.
PGP: 02764305, B7A3AB89