[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: rglug: Re: rglug: Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]



Hæ aftur
    Enn og aftur hætt ég mér í ljónagryfjuna. (Er einhverjum illa við að vera 
líkt við ljón í gryfju :)
> > On 2008-06-03, 16:17:35 (+0000), Arnar Birgisson wrote:
> > Meginspurningin hér, er hvort einhverjar mikilvægar tegundir af
> > hugbúnaði gætu alls ekki þrifist í slíku umhverfi.
> >
> > Í fljótu bragði sé ég ekki hvernig það gæti staðist - ef hugbúnaðurinn
> > leysir brýnt vandamál, þá er sú lausn peninga virði, alveg óháð því
> > hvaða skilmálar gilda.  Það er ekki oft sem menn kaupa bara hugbúnað,
> > yfirleitt kaupa menn blöndu af vélbúnaði, hugbúnaði og þjónustusamningum.
> > Skilmálar hugbúnaðarins hafa engin áhrif á hvað hægt er að rukka fyrir
> > vélbúnað og þjónustu.
> >
> > Mér þætti áhugavert að vita hvort þú ert með einhver konkret mótdæmi?
>
> Nei, ekki í fljótu bragði. Ég er sem betur fer ekki alveg sannfærður
> um að ég hafi rétt fyrir mér - bara að í minni skammsýnu hugsun sé ég
> þetta ekki alveg fyrir mér.
>
> > Ég er sannfærður um að svipaðar efasemdaraddir heyrðust þegar menn
> > byrjuðu fyrst að ræða um að gerðar yrðu lögformlegar öryggiskröfur til
> > þeirra sem framleiða bíla.  :-)  En bílabransinn lifði það víst af.
Ég er með mörg konkret móttdæmi en læt tvö duga.
1. Gcc þýðandinn og Gdb aflúsunartólið virka fyrir ARM tölvur og JTAG úttak. 
Hins vegar get ég ekki skrifað beint í flash minnið með Gdb. Það gerir Gdb 
ónothæft nema fyrir eitthvert dútl. Ég gæti eytt fimm mannárum í að skrifa 
þennan hugbúnað og gefa hann síðan samfélaginu en ég geri það ekki og enginn 
annar virðist gera það heldur. Það er mun ódýrara fyrir mig að borga 
milljónina sem commercial tól kostar.

Ég væri mun sáttari ef ég gæti notað Gdb og keypt það sem vantar upp á. Það 
myndi gangast samfélaginu og OSS.

2. Fólki er velkomið að skoða tvo af Debian pökkunum mínum: sdcc og sdcc-nf. 
sdcc-nf er í non-free í Debian því hluti þess er ekki undir GPL. Ég bauðst 
til þess að leggja í púkk ef einhver vildi endurskrifa þennan kóða sem ég á í 
vandræðum með en var beðinn um að gera það ekki því boð um borgun myndi 
skemma móralinn í þróunarhópnum.
 
Á móti finnst mér Wine stórfínt dæmi um hugbúnað sem tók stórum framförum 
eftir að "commercial" fyrirtækið Crossover tók til við að þróa það. Ég hef 
tvisvar keypt Crossover, meðal annars til að styrkja verkefnið.
>
> Hehe, eflaust. En það er kannski ekki alveg sambærilegt. Þar erum við
> að tala um frekar einfaldar breytingar sem auka kostnað frameleiðenda,
> en breyta í sjálfu sér ekki bisness-módelinu. En, ég held ég sé enn og
> aftur kominn út í umræður með ófullmyndaða skoðun sem mér gengur illa
> að bakka upp og því kannski best að leggja árar í bát. :)
Ég held að þú hafir alveg nógu mótaðar hugmyndir Arnar :)
Mér finnst heimskulegt af okkur að segja fyrirtækjum hvernig þau eiga að græða 
pening.
Það er miklu eðlilegra hlutverk þeirra sem hafa áhuga á OSS að hámarka 
skriftir á OSS með því að hámarka notagildi hugbúnaðarins. Eins og Ivan 
bendir á á blogginu sínu. Það að Qt sé "multiplatform" hjálpar Linux. Alveg 
eins held ég að fleiri "commercial" forrit undir Linux muni einungis styrkja 
opinn hugbúnað.

Kveðja
Gaui