[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]
Re: rglug: Re: rglug: Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]
Hæ, hó,
2008/6/3 Bjarni R. Einarsson <bre ( at ) klaki ( dot ) net>:
> (aðvörun: heimspekilegar Stallmanískar vangaveltur framundan)
Heh, mín aðvörun: heimskulegar Arnarískar vangaveltur framundan. :)
Annars má ég til með að benda mönnum á subjectið,
Re: rglug: Re: rglug: Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]
Brilljant.. :)
> On 2008-06-03, 16:17:35 (+0000), Arnar Birgisson wrote:
> Meginspurningin hér, er hvort einhverjar mikilvægar tegundir af
> hugbúnaði gætu alls ekki þrifist í slíku umhverfi.
>
> Í fljótu bragði sé ég ekki hvernig það gæti staðist - ef hugbúnaðurinn
> leysir brýnt vandamál, þá er sú lausn peninga virði, alveg óháð því
> hvaða skilmálar gilda. Það er ekki oft sem menn kaupa bara hugbúnað,
> yfirleitt kaupa menn blöndu af vélbúnaði, hugbúnaði og þjónustusamningum.
> Skilmálar hugbúnaðarins hafa engin áhrif á hvað hægt er að rukka fyrir
> vélbúnað og þjónustu.
>
> Mér þætti áhugavert að vita hvort þú ert með einhver konkret mótdæmi?
Nei, ekki í fljótu bragði. Ég er sem betur fer ekki alveg sannfærður
um að ég hafi rétt fyrir mér - bara að í minni skammsýnu hugsun sé ég
þetta ekki alveg fyrir mér.
> Ég er sannfærður um að svipaðar efasemdaraddir heyrðust þegar menn
> byrjuðu fyrst að ræða um að gerðar yrðu lögformlegar öryggiskröfur til
> þeirra sem framleiða bíla. :-) En bílabransinn lifði það víst af.
Hehe, eflaust. En það er kannski ekki alveg sambærilegt. Þar erum við
að tala um frekar einfaldar breytingar sem auka kostnað frameleiðenda,
en breyta í sjálfu sér ekki bisness-módelinu. En, ég held ég sé enn og
aftur kominn út í umræður með ófullmyndaða skoðun sem mér gengur illa
að bakka upp og því kannski best að leggja árar í bát. :)
cheers,
Arnar