[Date Prev][Date Next][Thread Prev][Thread Next][Date Index][Thread Index]

Re: rglug: Re: rglug: Re: rglug: Re: [Fwd: Re: OLPC]



(aðvörun: heimspekilegar Stallmanískar vangaveltur framundan)

On 2008-06-03, 16:17:35 (+0000), Arnar Birgisson wrote:
> Hárrétt, ég geri mér grein fyrir því. Hins vegar er staðreyndin að í
> mörgum tilfellum helst þetta í hendur. Ef ég ætla að skrifa dýran
> hugbúnað, þá verð ég að vernda fjárfestinguna - og hluti af því er að
> gefa hann ekki út undir opnu leyfi.

Ég skil að þú *viljir* það, allir sem á annað borð vilja græða peninga, 
láta sig dreyma um að komast í einokunaraðstöðu og fá peninga í áskrift.

Það er hinsvegar vel hægt að rífast fram og til baka um hvort það sé
samfélaginu í hag að fólki sé gefinn kostur á þessu (og hér sýni ég
mitt Stallmanískasta eðli) - ég trúi að svo sé ekki.


> Á morgun já, fyrir tölvumenn, já. Hvað með eftir 5 ár fyrir fjárfesta
> og eigendur hugbúnaðarfyrirtækja?

Þetta er ekki eitthvað sem má breytast á einni nóttu, ég myndi ekki
mæla með slíku plani.  En að þetta gerist smám saman, tel ég að væri 
mjög æskilegt.  Ef þetta gerist smám saman munu fyrirtæki og fjárfestar
einfaldlega laga sig að breyttum aðstæðum.

Til dæmis væri hægt að setja lög í dag, sem krefðist þess að kóði alls
hugbúnaðar yrði opnaður árið 2030, óháð því hvenær hann er skrifaður.
Fæstir skrifa í dag hugbúnað sem ætlaður er til að lifa svona lengi, 
og þetta gæfi mönnum drjúga stund til að breyta bissnessmódelum sínum.


> Þar liggur kannski hnífurinn í kúnni, það sem er best fyrir neytendur
> er ekki alltaf hagkvæmur kostur fyrir þá sem eiga fjármagnið og þann
> sem situr hinu megin við borðið. Heildstætt módel þarf að hugsa út frá
> þeirra sjónarmiðum líka.

Af hverju?  Það verður alltaf hægt að afla sér lífsviðurværis með því að 
veita góða þjónustu.  Þeir sem ekki nenna að breyta sínum starfsvenjum
eða geta ekki veitt góða þjónustu eiga að fara á hausinn.  Þannig 
virkar kapitalisminn. :-)

Meginspurningin hér, er hvort einhverjar mikilvægar tegundir af 
hugbúnaði gætu alls ekki þrifist í slíku umhverfi.

Í fljótu bragði sé ég ekki hvernig það gæti staðist - ef hugbúnaðurinn
leysir brýnt vandamál, þá er sú lausn peninga virði, alveg óháð því
hvaða skilmálar gilda.  Það er ekki oft sem menn kaupa bara hugbúnað, 
yfirleitt kaupa menn blöndu af vélbúnaði, hugbúnaði og þjónustusamningum.
Skilmálar hugbúnaðarins hafa engin áhrif á hvað hægt er að rukka fyrir
vélbúnað og þjónustu.

Mér þætti áhugavert að vita hvort þú ert með einhver konkret mótdæmi?


> Ég er ekki alveg sannfærður um að hugbúnaðargeirinn sem iðngrein myndi
> fúnkera til lengri tíma ef það yrðu t.d. sett lög um að allur
> hugbúnaður væri opinn. Hann þyrfti allavega að breytast töluvert mikið
> og peningastreymið yrði að vera á einhverjum öðrum forsendum en venjan
> er í dag.

Það er alveg rétt, hann þyrfti að breytast.  En ég sé ekki af hverju það 
ætti ekki að vera hægt, og ég sé margar ástæður til að ætla að það væri 
mikil framför.

Ég er sannfærður um að svipaðar efasemdaraddir heyrðust þegar menn 
byrjuðu fyrst að ræða um að gerðar yrðu lögformlegar öryggiskröfur til
þeirra sem framleiða bíla.  :-)  En bílabransinn lifði það víst af.

-- 
Bjarni Rúnar Einarsson
 bre ( at ) klaki ( dot ) net                   
 http://bre.klaki.net/

Use http://bre.klaki.net/bre/contact.shtml to bypass my spam filters.
PGP: 02764305, B7A3AB89